Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvað kostar að hafa kveikt á ljósaperu?

Ívar Daði Þorvaldsson

Hér er svarað eftirfarandi spurningum:
  • Hvað kostar að hafa kveikt á 60 W ljósaperu í einn mánuð? (Árni Björn)
  • Hvað kostar að láta 40 W ljósaperu loga í 4 klukkustundir? Hvaða verð er ég að borga á mínu heimili? (Eva)
  • Hversu mikið kostar að láta 40 W ljósaperu loga í einn sólarhring? (Sverrir Páll)

Hjá Orku náttúrunnar er að finna reiknivél þar sem má áætla orkunotkun heimilisins og kostnað.

Fyrst er vert að rifja upp mælieiningar fyrir orku. Orka er mæld í júlum ($J$) og afl er mælt í vöttum ($W$) en sambandið á milli þeirra er:

$$1\: W = 1\: \frac{J}{s}$$

þar sem $s$ er sekúnda. Með því að laga jöfnuna til fáum við:

$$1\: Ws = 1\: J$$

Venja er að mæla raforku í kílóvattstundum (kWh en h stendur fyrir hour eða klukkustund á íslensku):

$$1\: kWh = 1000\cdot 3600\: J = 3.600.000\: J$$

en $1\: kW = 1000\: W$ og það eru 3600 sekúndur í einni klukkustund. Ljósapera sem er 60 W og lýsir í 12 klukkustundir notar því 720 Wh ($60\: W\cdot 12\:h = 720\: Wh$). Miðað við 12 klukkustunda lýsingu á dag í heilt ár myndi ljósaperan nota 262.800 W eða 262,8 kWh.

Meira má lesa um orku og afl í svari Þorsteins Vilhjálmssonar við spurningunni: Hve mikla varmaorku þarf til að hita 1 kg af vatni frá 0°C upp í 100°C? Enn fremur í svari HG við spurningunni: Hversu miklu rafmagni skilar virkjun af sér á mínútu?

Talsvert er hægt að spara með notkun sparpera í stað venjulegra glópera.

Sparperur nota umtalsvert minni orku en glóperur en glóperur hafa nú verið bannaðar í Evrópusambandinu. Þetta sjáum við glögglega á töflu 1 en þar höfum við tekið saman árskostnað við notkun á mismunandi ljósaperum í mislangan tíma á dag með hjálp reiknivélar Orku náttúrunnar.

Tafla 1: Árskostnaður við notkun á þremur mismunandi ljósaperum í mislangan tíma á dag.

Lýsingartími
[klukkustundir á dag]
1
4
8
12
24
Ljósapera 60 W
301 kr.
1.248 kr.
2.511 kr.
3.760 kr.
7.534 kr.
Ljósapera 40 W
201 kr.
832 kr.
1.665 kr.
2.511 kr.
5.023 kr.
Ljósapera LED 5 W
14 kr.
100 kr.
201 kr.
301 kr.
617 kr.

Með töflu 1 í huga getum við svarað spurningunum hér að ofan:
  • Það kostar 628 kr. að hafa kveikt á 60 W ljósaperu stanslaust í einn mánuð.
  • Að láta 40 W ljósaperu loga í 4 klukkustundir á dag kostar 832 kr. á ári en einungis 2 kr. að hafa kveikt á henni í 1 dag.
  • Það kostar 14 kr. að hafa kveikt á 40 W ljósaperu í einn sólarhring.

Tekið skal fram að kostnaðurinn er einungis settur fram til viðmiðunar eins og kemur fram í fyrirvara reiknivélarinnar.

Heimildir:

Mynd:

Höfundur

Ívar Daði Þorvaldsson

M.Sc. í hugbúnaðarverkfræði og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

24.11.2016

Spyrjandi

Árni Björn Árnason, Eva Örnólfsdóttir, Sverrir Páll Snorrason

Tilvísun

Ívar Daði Þorvaldsson. „Hvað kostar að hafa kveikt á ljósaperu?“ Vísindavefurinn, 24. nóvember 2016. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=20146.

Ívar Daði Þorvaldsson. (2016, 24. nóvember). Hvað kostar að hafa kveikt á ljósaperu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=20146

Ívar Daði Þorvaldsson. „Hvað kostar að hafa kveikt á ljósaperu?“ Vísindavefurinn. 24. nóv. 2016. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=20146>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...