Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvers vegna suða rafmagnstæki rétt áður en farsímar hringja eða SMS-skilaboð berast?

Hrefna Marín Gunnarsdóttir

Upplýsingar berast til og frá farsímum með rafsegulbylgjum. Rafmagnstæki sem eru nálægt farsímum, yfirleitt hátalarar, fara stundum að suða rétt áður en við heyrum símann hringja. Ástæðan er sú, að á meðan farsíminn og símkerfið eru að semja sín á milli um það hvernig skuli setja upp símtalið, sendir farsíminn frá sér talsvert kraftmeiri rafsegulbylgjur en venjulega, á formi stuttra púlsa. Á meðan á þessum stuttu samningaviðræðum stendur, þá virka óvarðir vírar í hátölurunum sem loftnet og púlsarnir breytast í hljóðmerki sem við heyrum. Þegar símtalið sjálft hefst, þá lækkar farsíminn sendiaflið og því heyrist ekki lengur í honum.

Þegar farsími og símkerfi semja um uppsetningu símtals, sendir farsíminn frá sér kraftmeiri rafsegulbylgjur en venjulega og þá geta óvarðir vírar í nálægum hátölurum virkað sem loftnet og púlsar frá símanum breytast í hljóðmerki.

Svipað gerist þegar SMS-skilaboð eru móttekin, það er síminn sendir frá sér kraftmeiri rafsegulbylgjur á púlsformi til að láta vita að hann sé tilbúinn að taka á móti skilaboðum. Það dugar til að þess að við heyrum í merkjunum ef rafmagnstæki eins og hátalarar eru nærri farsímanum.

Rétt er að taka fram að þetta á einkum við um venjulega GSM-síma; nýrri farsímar og farsímastaðlar eins og 3G, senda ekki frá sér stutta púlsa á þessu formi.

Ítarefni:

Mynd:

Höfundur

lektor í rafmagns- og töluverkfræði

Útgáfudagur

28.10.2011

Spyrjandi

Margrét Ólafsdóttir

Tilvísun

Hrefna Marín Gunnarsdóttir. „Hvers vegna suða rafmagnstæki rétt áður en farsímar hringja eða SMS-skilaboð berast?“ Vísindavefurinn, 28. október 2011. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=25762.

Hrefna Marín Gunnarsdóttir. (2011, 28. október). Hvers vegna suða rafmagnstæki rétt áður en farsímar hringja eða SMS-skilaboð berast? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=25762

Hrefna Marín Gunnarsdóttir. „Hvers vegna suða rafmagnstæki rétt áður en farsímar hringja eða SMS-skilaboð berast?“ Vísindavefurinn. 28. okt. 2011. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=25762>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...