Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvað var Rauðsokkahreyfingin?

Kvennasögusafn Íslands

Í lok apríl 1970 kom saman hópur ungra kvenna í kjallara Norræna hússins til að ræða stöðu kvenna á Íslandi og aðgerðir til að vekja almenning. Fyrr í apríl hafði danskur kvennahópur er kallaði sig Rødstrømperne þrammað eftir Strikinu í Kaupmannahöfn, skrýddur risabrjóstum, gríðarlegum höttum, gerviaugnahárum og rauðum sokkum. Þessi aðgerð vakti gífurlega athygli fjölmiðla, einnig hinna íslensku. Fréttir höfðu einnig borist af aðgerðum kvenna prýddum rauðum sokkum í New York, en sá hópur kallaði sig New York Redstockings og tók til starfa 1968. Hinn óhefðbundni hollenski hópur Dolle Mina sem kom fram á sjónarsviðið í byrjun árs 1970, vakti einnig mikla athygli.

"Manneskja - ekki markaðsvara" 1. maí 1970.

Þann 1. maí hvatti hópurinn sem hittist í kjallara Norræna hússins konur til að mæta í göngu verkalýðsfélaganna í Reykjavík og auglýstu í útvarpinu: „Konur á rauðum sokkum! Komið í 1. maí gönguna.“ Konur báru risastóra styttu af konu í göngunni með stórum borða strengdan yfir bumbuna. Á honum stóð: Manneskja - ekki markaðsvara. Þar var kynnt til sögunnar eitt helsta baráttumál Rauðsokkahreyfingarinnar sem stofnuð var með fjölsóttum kynningarfundi 19. október 1970 í Norræna húsinu.

Rauðsokkur stefndu að því að vekja með öllum ráðum athygli á bæði augljósu og földu misrétti kynjanna, svo og kúgun sem ætti sér rætur í þjóðfélagsgerð og fjölskylduhefðum. 1972 fluttu rauðsokkur tíu þætti í útvarpið sem fjölluðu meðal annars um barneignir, getnaðarvarnir og fóstureyðingar, barnaheimili og barnauppeldi og heimahúsmæður og mat á heimilisstörfum. Sumir þáttanna vöktu heitar umræður og hneykslan, enda um mikil hitamál að ræða.

Þættirnir voru fluttir undir nafninu „Ég er forvitin -rauð“, en Forvitin rauð varð nafn á blaði sem hreyfingin hóf að gefa út árið 1972, það fyrsta fyrir greiðsluna fyrir útvarpsþættina. Þættirnir voru allir unnir í hópvinnu , eins og venja var hjá rauðsokkum. Skipulag rauðsokka stríddi framan af gegn hefðbundnu félagaformi, enda töldu meðlimir það vera form sem hefti umræður og skoðanaskipti. Hreyfingin kaus enga/nn (karlmenn gátu líka verið meðlimir) formann, hélt engar fundargerðarbækur og þeir hópar sem upp spruttu gerðu það af sjálfdáðum.

Forsíða fyrsta tölublaðs ritsins Forvitin rauð sem Rauðsokkahreyfingin gaf út.

Það mál sem mest braut á rauðsokkum var fóstureyðingarmálið. Eitt af hjartans málum rauðsokka var opin umræða og fræðsla um kynferðismál. Áhersla var lögð á að konan ætti ein að ákveða hvort fóstri yrði eytt. Ein rauðsokka átti sæti í nefnd þeirri er samdi frumvarp til nýrra laga um fóstureyðingar og getnaðarvarnir sem lagt var fram á þingi haustið 1973. Þar var réttur konunnar viðurkenndur. Málið varð strax mikið hitamál og fóru leikar svo að frumvarpið var ekki samþykkt. Þau lög sem við búum enn við voru samþykkt árið 1975 og þar er réttur konunnar ekki viðurkenndur, ólíkt því sem hugur rauðsokka stefndi til, og ólíkt því sem tíðkast í langflestum nágrannalöndum okkar.

Rauðsokkur beittu stundum óhefðbundnum aðferðum til að vekja athygli á misréttinu. Ein þeirra var mótmæli við fegurðarsamkeppnum þar sem þess var krafist að hætt yrði að nota kvenlíkamann í auðgunarskyni og í auglýsingum. Fyrstu, en ekki síðustu, mótmælin urðu í desember 1970. Fegurðarsamkeppnir lögðust af hér á landi á tímabili, einkum vegna mótmælanna.

Hljómplatan Áfram stelpur var gefin út árið 1975. Á plötunni er að finna lög og texta sem fjalla um stöðu kvenna. Tiltillagið hefur allar götur síðan verið táknrænn söngur kvennafrídagsins og réttindabaráttu kvenna.

Árið 1974 urðu vatnaskil í starfi rauðsokka. Á ráðstefnu sem haldin var það ár var samþykkt róttæk stefnuyfirlýsing og gengu þá nokkrar úr Rauðsokkahreyfingunni í mótmælaskyni. En þar var einnig varpað fram þeirri hugmynd að konur gerðu verkfall einn dag á kvennaári Sameinuðu þjóðanna árið 1975. Hugmyndin að kvennafrídeginum var fædd.

Rauðsokkahreyfingin starfaði til ársins 1982 þegar ný samtök kvenna í Reykjavík og á Akureyri komu fram og buðu fram sérlista til sveitarstjórnarkosninga. Margar rauðsokkur kusu að starfa með hinum nýju samtökum og Rauðsokkahreyfingin hætti störfum.

Myndir:

Þetta svar er fengið af vef Kvennasögusafns Íslands og birt með góðfúslegu leyfi.

Útgáfudagur

23.10.2015

Spyrjandi

Skarphéðinn Þórsson

Tilvísun

Kvennasögusafn Íslands. „Hvað var Rauðsokkahreyfingin?“ Vísindavefurinn, 23. október 2015. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=30364.

Kvennasögusafn Íslands. (2015, 23. október). Hvað var Rauðsokkahreyfingin? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=30364

Kvennasögusafn Íslands. „Hvað var Rauðsokkahreyfingin?“ Vísindavefurinn. 23. okt. 2015. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=30364>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...