Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík

Er til annar heimur inni í svartholum?

JGÞ

Eins og fjallað hefur verið um áður á Vísindavefnum getum við aldrei fullvissað okkur um það hvort til sé annar heimur eða ekki. Um það má meðal annars lesa í svari við spurningunni: Gæti hugsanlega verið til annar alheimur?

Spyrjandi spyr sérstaklega um svarthol og er þá væntanlega að vísa til svonefndra ormaganga. Með því að fara inn í svarthol væri fræðilega séð hægt að fara bæði á annan stað í alheiminum og hugsanlega í annan alheim. Tengingin þarna á milli nefnist ormagöng


Teikning af ormagöngum í sveigðu rúmi.

Fræðin um svarthol segja hins vegar að tengingin þarna á milli vari aðeins í örskamma stund, þannig að ekki einu sinni ljósið næði að komast í gegn. Brautin yfir í hugsanlegan annan alheim byggir enn fremur á sérstökum skilyrðum sem vísindamenn álíta að hafi aldrei verið fyrir hendi.

Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Útgáfudagur

11.4.2011

Spyrjandi

Sæþór Bragi Ágústsson, f. 1995

Tilvísun

JGÞ. „Er til annar heimur inni í svartholum?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2011. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59379.

JGÞ. (2011, 11. apríl). Er til annar heimur inni í svartholum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59379

JGÞ. „Er til annar heimur inni í svartholum?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2011. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59379>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Er til annar heimur inni í svartholum?
Eins og fjallað hefur verið um áður á Vísindavefnum getum við aldrei fullvissað okkur um það hvort til sé annar heimur eða ekki. Um það má meðal annars lesa í svari við spurningunni: Gæti hugsanlega verið til annar alheimur?

Spyrjandi spyr sérstaklega um svarthol og er þá væntanlega að vísa til svonefndra ormaganga. Með því að fara inn í svarthol væri fræðilega séð hægt að fara bæði á annan stað í alheiminum og hugsanlega í annan alheim. Tengingin þarna á milli nefnist ormagöng


Teikning af ormagöngum í sveigðu rúmi.

Fræðin um svarthol segja hins vegar að tengingin þarna á milli vari aðeins í örskamma stund, þannig að ekki einu sinni ljósið næði að komast í gegn. Brautin yfir í hugsanlegan annan alheim byggir enn fremur á sérstökum skilyrðum sem vísindamenn álíta að hafi aldrei verið fyrir hendi.

Heimildir og frekara lesefni á Vísindavefnum:

Mynd:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur. ...