Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað þýðir orðið simsalabim og hvaðan er það upprunnið?

Guðrún Kvaran

Orðið simsalabim er sennilega upprunnið í þýsku. Fleiri en ein skýring er á tilurð þess. Sumir álíta það eiga rætur að rekja allt aftur til síðmiðalda. Kristnir menn hafi talið múslima eins konar töframenn. Upphafsorð við ýmiss konar athafnir „bismi allah rahman i rahim“ (‛í nafni guðs hins algóða’) hafi afbakast í simsalabim (‛og það varð’) í munni þeirra sem ekki skildu og orðið eins konar töfraformúla í sömu merkingu og „hókus pókus“.

Ein skýring á simsalabim er að það sé afbökun á upphafsorðum múslima við ýmiss konar athafnir.

Aðrir tengja orðið við „similia similibus“ í latínu (‛líkt [læknað] með líku’). Í þýsku var simsalabim einnig viðlag í barnaljóði og barst í báðum merkingum til Danmerkur og þaðan hingað til lands.

Heimild:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

2.1.2012

Spyrjandi

Sigríður H. Halldórsdóttir, f. 2002

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið simsalabim og hvaðan er það upprunnið?“ Vísindavefurinn, 2. janúar 2012. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=59965.

Guðrún Kvaran. (2012, 2. janúar). Hvað þýðir orðið simsalabim og hvaðan er það upprunnið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=59965

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið simsalabim og hvaðan er það upprunnið?“ Vísindavefurinn. 2. jan. 2012. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=59965>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...