Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Þegar talað er um að hlé sé ótímabundið, má þá búast við að viðkomandi snúi ekki aftur úr hléinu?

Guðrún Kvaran

Ef einhver tekur sér hlé frá einhverju getur það verið tímabundið og er þá yfirleitt vitað hversu lengi hléið stendur. Dæmi: „Jón tók sér tímabundið hlé frá störfum. Hófst það 1. maí og stóð til 1. júlí.“

Bæði er hægt að taka sér tímabundið og ótímabundið hlé frá störfum. Almennt er gert ráð fyrir því að fólk snúi aftur eftir hlé.

Þegar um ótímabundið hlé er að ræða er ekki vitað hvenær því lýkur. Dæmi: „Jón veiktist alvarlega og tók sér ótímabundið hlé frá störfum á meðan hann var að jafna sig.“

Almennt er gert ráð fyrir því að fólk snúi aftur eftir að hafa tekið tímabundið eða ótímabundið hlé frá einhverju en aðstæður geta alltaf breyst þannig að til dæmis tímabundið hlé verði ótímabundið.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

30.11.2012

Spyrjandi

Guðrún Gunnarsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Þegar talað er um að hlé sé ótímabundið, má þá búast við að viðkomandi snúi ekki aftur úr hléinu?“ Vísindavefurinn, 30. nóvember 2012. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=60210.

Guðrún Kvaran. (2012, 30. nóvember). Þegar talað er um að hlé sé ótímabundið, má þá búast við að viðkomandi snúi ekki aftur úr hléinu? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=60210

Guðrún Kvaran. „Þegar talað er um að hlé sé ótímabundið, má þá búast við að viðkomandi snúi ekki aftur úr hléinu?“ Vísindavefurinn. 30. nóv. 2012. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=60210>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...