Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Er nafnið Snorre upprunalegra en Snorri?

Guðrún Kvaran

Bókstafurinn –e í Snorre stendur í algerri bakstöðu. Forngermanskt –i í bakstöðu varð í forníslensku mjög snemma og fyrir ritun íslenskra heimilda að –e, samanber geste, hirþe í stað gesti, hirði. Þegar fyrir 1250 kom –i inn aftur í stað –e þótt fyrri ritháttinn megi sjá mun lengur í sumum handritum. Samkvæmt þessu ætti Snorre að vera eldri mynd, en Snorri vera sú sem algeng verður upp úr miðri 13. öld.

Í Sturlungu segir: „Snorri sat í laugu.“ Snorre er eldri mynd en Snorri.

Heimild:
  • Adolf Noreen. 1970. Altnordische Grammatik. I. 5. útgáfa. Bls. 123. Tübingen, Max Niemayer.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.10.2011

Spyrjandi

Sverrir Geirsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Er nafnið Snorre upprunalegra en Snorri? “ Vísindavefurinn, 24. október 2011. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=60380.

Guðrún Kvaran. (2011, 24. október). Er nafnið Snorre upprunalegra en Snorri? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=60380

Guðrún Kvaran. „Er nafnið Snorre upprunalegra en Snorri? “ Vísindavefurinn. 24. okt. 2011. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=60380>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar