Sólin Sólin Rís 05:43 • sest 21:13 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 13:37 • Sest 06:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 02:59 • Síðdegis: 15:47 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 09:39 • Síðdegis: 21:50 í Reykjavík

Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju?

Jón Már Halldórsson

Svarið við þessari spurningu er einfalt: Já, mjólk flóðhesta er bleik á litinn!

Þessi kálfur hefur gætt sér á bleikri mjólk!

Flóðhestar seyta tveimur merkilegum efnasamböndum úr húðinni. Þau eru það einstök í dýraríkinu að þau bera heiti flóðhesta. Þetta eru efnin hipposudoric-sýra og norhipposudoric-sýra. Efnin eru rauðleit og hafa það hlutverk að verja flóðhestana fyrir sterkum geislum sólar og eru einnig bakteríudrepandi. Eitthvað af þessum efnum smitast í mjólkina þar sem hún berst úr mjólkurkirtlunum um rás og í spenann. Þetta gefur mjólk flóðhesta ljósbleikan blæ.

Mynd:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

22.5.2012

Spyrjandi

Bjarni Ólafsson, f. 1997

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju?“ Vísindavefurinn, 22. maí 2012. Sótt 18. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=62500.

Jón Már Halldórsson. (2012, 22. maí). Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=62500

Jón Már Halldórsson. „Er flóðhestamjólk bleik og ef svo er, af hverju?“ Vísindavefurinn. 22. maí. 2012. Vefsíða. 18. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=62500>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...