Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík

Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn? - Myndband

Ari Ólafsson

Málmar og örbylgjur geta farið ágætlega saman. Þannig eru bylgjurnar í örbylgjuofninum leiddar frá bylgjugjafanum í málmstokki sem kallaður er bylgjuleiðari og sjálft bylgjuhólfið sem maturinn er hitaður í er málmkassi. Bylgjurnar speglast af málmfletinum og fara aðra umferð um hólfið. Speglunin gerist á þann hátt að örbylgjurnar sveifla rafeindunum í ysta lagi málmsins og þær geisla aftur út örbylgjum. Til þess að lítið afl fari til spillis við hitun á málminum þarf hann að leiða rafstraum vel.

Áhrif af því að stinga málmhlut inn í örbylgjuofn eru fyrst og fremst þau að hann endurkastar örbylgjunum svo að orkudreifingin í ofninum breytist.

Hægt er að lesa meira um málma og örbylgjuofna í svari Ara Ólafssonar við spurningunni Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn?

Myndbandið er einnig aðgengilegt á YouTube-síðu Vísindavefsins og á Vimeo.

Höfundur

Ari Ólafsson

dósent emeritus í eðlisfræði við HÍ

Útgáfudagur

25.1.2013

Spyrjandi

Ómar Gústafsson

Tilvísun

Ari Ólafsson. „Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn? - Myndband.“ Vísindavefurinn, 25. janúar 2013. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=64210.

Ari Ólafsson. (2013, 25. janúar). Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn? - Myndband. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=64210

Ari Ólafsson. „Hvers vegna má ekki setja málmhluti í örbylgjuofn? - Myndband.“ Vísindavefurinn. 25. jan. 2013. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=64210>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...