Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Við hvað sýsla menn? Af hverju er sagnorðið dregið?

Guðrún Kvaran

Í eldra máli var notað kvenkynsorðið sýsl í merkingunni ‛starf, embætti; embættissvæði’. Ásgeir Blöndal Magnússon telur í Íslenskri orðsifjabók (1989:1012) að sögnin að sýsla ‛annast, starfa, fást við’ sé leidd af því orði fremur en kvenkynsorðinu sýsla. Samsvarandi sagnir finnast í grannmálunum, samanber færeysku sýslast, nýnorsku sysla, sænsku syssla, dönsku sysle í sömu merkingu.

Sögnin að sýsla ‛annast, starfa, fást við’ er leidd af kvenkynsorðinu sýsl í merkingunni 'starf, embætti; embættissvæði’

Nafnorðið sýsla ‛starf, embætti; embættisverk’ er vissulega af sama toga og á einnig samsvaranir í grannmálunum, til dæmis færeysku sýsla og dönsku syssel.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

11.4.2013

Spyrjandi

Kristín María

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Við hvað sýsla menn? Af hverju er sagnorðið dregið?“ Vísindavefurinn, 11. apríl 2013. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=64318.

Guðrún Kvaran. (2013, 11. apríl). Við hvað sýsla menn? Af hverju er sagnorðið dregið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=64318

Guðrún Kvaran. „Við hvað sýsla menn? Af hverju er sagnorðið dregið?“ Vísindavefurinn. 11. apr. 2013. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=64318>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...