Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík

Hvað er streita og hvaða hlutverki gegnir hún?

Axel F. Sigurðsson

Flestum er ljóst að lífsstíll getur haft mótandi áhrif á heilsuna. Í þessu felast ýmis tækifæri til að auka vellíðan og draga úr líkum á sjúkdómum. Það er í okkar höndum hvað og hversu mikið við borðum, hvort við hreyfum okkur, hvort við reykjum, og hvort og hvernig við notum áfengi. Ýmsum öðrum lífsstílsþáttum er þó erfiðara að stýra. Gott dæmi um þetta er streita. Þó er streita sannarlega oft meiri áhrifavaldur á líf okkar og heilsu en við gerum okkur grein fyrir.

Margar rannsóknir benda til þess að tilfinningaleg streita geti aukið líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum. Langvinn streita hækkar oft blóðþrýsting og hefur neikvæð áhrif á blóðfitur. Streita ýtir undir æðasamdrátt, hvetur til bólgusvörunar í æðakerfinu, eykur blóðsegamyndun og hættuna á hjartaáföllum og skyndidauða.

Einkenni sem rekja má til streitu eru ein algengasta ástæða þess að fólk leitar læknis. Hluti vandans er þó sá að hugtökin streita eða stress eru notuð á marga mismunandi vegu. Þetta getur stundum leitt til misskilnings. Það er bæði erfitt að skilgreina streitu og mæla hana og að takast á við hana er oft tímafrekt og flókið. Þess vegna er gjarnan tilhneiging til að horfa fram hjá vandamálinu og jafnvel afneita því. Við lítum oft á streitu sem eitthvað ósýnilegt og óáþreifanlegt, eitthvað sem kemur utan frá og við getum ekki brugðist við.

Til þess að skilja eðli og umfang streitu þurfum við að gera greinarmun á streituvaldinum sem fær líkama okkar til að bregðast við, og streituviðbrögðunum sem eru svar líkamans við hinu ytra áreiti. Streituvaldurinn er oftast utanaðkomandi þáttur sem getur komið okkur úr jafnvægi. Þetta getur verið bein aðsteðjandi hætta eins og bíll sem nálgast á mikilli ferð þegar við förum yfir götu. Streituvaldurinn getur líka verið allt annars eðlis, til dæmis miklar annir í vinnu, hjónabandsörðugleikar eða ástvinamissir. Svörun líkamans eða streituviðbrögðin eru hins vegar nokkuð svipuð, hver sem streituvaldurinn er.

Umferð er mikill streituvaldur fyrir suma.

Þegar streituvaldur setur okkur úr jafnvægi fara ýmis varnarkerfi líkamans af stað. Virkni „sympatiska“ hluta ósjálfráða taugakerfisins eykst og nýrnahetturnar framleiða meira af adrenalíni og sterahormónum (til dæmis kortisól) sem leita út í blóðið. Við getum ímyndað okkar aðstæður þar sem við mætum grimmu villidýri á göngu okkar. Við þessar aðstæður eru streituviðbrögð fullkomlega eðlileg og geta bjargað lífi okkar. Villidýrið er streituvaldurinn, svar líkamans eru streituviðbrögðin. Kortisól og adrenalín streyma út í blóðið. Hjartsláttarhraði eykst og blóðþrýstingur hækkar. Sykurmagn í blóði hækkar því við þurfum á einfaldri orku eða eldsneyti að halda. Öndun verður hraðari því vefir líkamans kalla á meira súrefni. Vöðvaspenna eykst. Öll skilningarvit eru fullvirkjuð. Við erum tilbúin til að flýja eða berjast til að bjarga lífi okkar.

Af þessu er augljóst að streituviðbrögðin eru mikilvægur hluti varnarkerfis líkamans og gera okkur kleift að bregðast við aðsteðjandi hættu. Við verðum einbeitt, orkumikil og á varðbergi. Sömu líkamlegu viðbrögð geta einnig verið hjálpleg við aðrar kringumstæður en þau koma að gagni við krefjandi aðstæður í vinnu þar sem leysa þarf erfið verkefni. Þau hjálpa ræðumanninum í pontu, leikaranum á sviði, lækninum í skurðaðgerð, og íþróttamanninum á hlaupabrautinni.

Hins vegar kemur oft að tímapunkti þar sem streituviðbrögðin verða svo mikil eða langdregin að þau fara að hafa skaðleg áhrif á heilsuna. Við þessar kringumstæður getur streitan dregið úr virkni og valdið vanlíðan. Lífsgæði versna og hættan eykst á ýmsum sjúkdómum svo sem hjarta- og æðasjúkdómum.

Hvað á fólk við þegar það telur sig þjást af streitu? Stundum kvörtum við yfir sjálfum streituvaldinum. Við tölum um persónuleg áföll, fjármálaerfiðleika, erfiðleika í hjónabandi eða slæmt vinnuumhverfi. Mikilvægt er að átta sig á því að streituvaldar sem eru í eðli sínu jákvæðir geta einnig valdið streituviðbrögðum, til dæmis skipulagning fermingarveislu eða stórafmælis eða sjónvarpsviðtal vegna áfanga sem náðst hefur. Sama má segja um þátttöku í íþróttakeppni, skákmóti, bridds eða golfmóti, allt eru þetta dæmi um hluti sem fólk kann að hafa ánægju af en sú staðreynd að um mót eða formlega keppni er að ræða leiðir oft til streituviðbragða. Þannig getur fólk upplifað streitueinkenni eins og einbeitingarörðugleika, svitamyndun, hraðan hjartslátt og svefnörðugleika. Flestir þekkja viðkvæðið „ég fór á taugum“, þegar illa gengur, eða jafnvel þegar vel gengur. Eitt af meginhlutverkum íþróttasálfræðinga er að hjálpa íþróttamanninum að stjórna sínum streituviðbrögðum.

Stundum tengjum við hins vegar kvartanir okkar alls ekki við streitu. Í staðinn kvörtum við um líkamleg einkenni eins og hjartsláttartruflanir, kviðverki, ógleði, niðurgang eða öndunarörðugleika. Sumir kvarta um kvíðatilfinningu og svefntruflanir.

Það er gagnlegt að gera greinarmun á bráðum og langvinnum streituvöldum. Dæmi um bráða streituvalda eru náttúruhamfarir eins og jarðskjálftar og snjóflóð, skyndilegur ástvinamissir, brottrekstur úr vinnu eða skyndileg fjárhagsleg áföll. Dæmi um langvinna streituvalda eru mikið vinnuálag, óhamingja í hjónabandi og langvinnir fjárhagserfiðleikar

Viðbrögð okkar við mismunandi streituvöldum eru sannarlega mismunandi og einstaklingsbundin. Þannig erum við misvel í stakk búin til að takast á við streituvaldinn. Þetta veltur á einstaklingnum sjálfum, persónugerð hans, lífsstíl og umhverfisþáttum. Einstaklingur sem hefur sterk fjölskyldu- eða vinatengsl getur átt auðveldara með að takast á við streituvalda en einstaklingur sem er félagslega einangraður.

Mynd:

Þetta svar er fengið af vefnum Mataræði.is og birt með góðfúslegu leyfi.

Höfundur

Axel F. Sigurðsson

hjartalæknir

Útgáfudagur

11.6.2013

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Axel F. Sigurðsson. „Hvað er streita og hvaða hlutverki gegnir hún?“ Vísindavefurinn, 11. júní 2013. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=65376.

Axel F. Sigurðsson. (2013, 11. júní). Hvað er streita og hvaða hlutverki gegnir hún? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=65376

Axel F. Sigurðsson. „Hvað er streita og hvaða hlutverki gegnir hún?“ Vísindavefurinn. 11. jún. 2013. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=65376>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...