Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju segjum við gilli-gill þegar við kitlum lítil börn?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Af hverju segjum við "gilli-gill" þegar við kitlum einhvern? Hefur það einhverja merkingu?

Það er vel þekkt að orð eru löguð til þegar verið er að tala við lítil börn. Eitt dæmi er orðið snuð 'eins konar tútta’ sem breyttist í snudda og aftur í dudda, til dæmis ,,Hvar er duddan þín?’

Gilli-gill er barnamál en sögnin að kitla liggur vafalaust að baki.

Gilli-gill er barnamál, sagt gælandi við lítil börn þegar verið er að kitla þau. Að baki liggur vafalaust sögnin að kitla. Upphaflega hefur þá verið sagt kitli-kitl sem síðar varð gilli-gill sem virkar enn meira gælandi.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.2.2014

Spyrjandi

Guðlaug Agnes Kristjánsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju segjum við gilli-gill þegar við kitlum lítil börn? “ Vísindavefurinn, 25. febrúar 2014. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=66432.

Guðrún Kvaran. (2014, 25. febrúar). Af hverju segjum við gilli-gill þegar við kitlum lítil börn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=66432

Guðrún Kvaran. „Af hverju segjum við gilli-gill þegar við kitlum lítil börn? “ Vísindavefurinn. 25. feb. 2014. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=66432>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...