Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Á að skrifa Jörð eða jörð?

Ari Páll Kristinsson

Spurningin í heild sinni hljóðaði svona:

Á að skrifa Jörð eða jörð? Aukaupplýsingar: Hér stendur að Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi fengið svar frá Íslenskri málnefnd um að rita ætti stóran staf þegar um sérnafnið væri að ræða. Hinsvegar er orðið Jörð með stórum staf hvorki til á Snöru né hjá Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls

Í ritreglum Íslenskrar málnefndar (2016) er eftirfarandi grein (1.2.2.3 C):
1.2.2.3 Nöfn á einstökum stöðum eru sérnöfn, til dæmis:
[...]
C. Nöfn á einstökum stjörnum, vetrarbrautum, geimþokum, samstirnum og stjörnumerkjum

• Mars, Merkúr, Venus, Svelgþokan, Kolapokinn, Karlsvagninn, Stóra Magellanskýið, Vatnsberinn

Athugið. Íslensk heiti himintungla í okkar sólkerfi eru rituð með litlum upphafsstaf: sól, sunna, jörð, tungl og máni. Jörðin er þó stundum rituð með stórum upphafsstaf í upptalningu á reikistjörnum: Merkúr, Venus, Jörð, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus. Pólstjarnan er sérheiti en getur einnig verið samnafn í merkingunni ‘stjarnan sem sést yfir norðurpólnum’. Heiti stjörnumerkja í stjörnuspeki eru með litlum staf: hrútsmerkið.

Þessi grein úr hinum opinberu ritreglum málnefndarinnar, frá 2016, veitir í raun svarið við spurningunni, það er að heimilt sé að rita Jörð með stórum upphafsstaf í upptalningu á reikistjörnum en að í öllu öðru samhengi skuli rita jörð.

Heimilt er að rita Jörð með stórum upphafsstaf í upptalningu á reikistjörnum en í öllu öðru samhengi á að rita jörð.

Íslensk málnefnd hafði áður fjallað um ritháttinn, í bréfi til mennta- og menningarmálaráðuneytisins 12. maí 2011. Þar er bent á að fjöldi samnafna og sérnafna í íslensku hljómi eins (til dæmis grund og Grund) og það geti gilt um jörð. Samheitið jörð, með litlum staf, sé líklega algengast en það megi hins vegar „telja það sérheiti þegar sérstaklega er rætt um reikistjörnuna Jörð, til að mynda í upptalningu á reikistjörnum: Merkúr, Venus, Jörð, Mars“. Málnefndin mælir með því „að sérnafnstúlkunin sé notuð afar sparlega og einvörðungu þegar sérstaklega er rætt um reikistjörnuna Jörð“.

Ritreglurnar frá 2016 veita síðan enn afdráttarlausari niðurstöðu, það er að aðeins sé heimilt að rita Jörð í upptalningu á reikistjörnum.

Mynd:

Svar við þessari spurningu birtist fyrst 19. maí 2014 en var endurskoðað 18. október 2017.

Höfundur

Ari Páll Kristinsson

rannsóknarprófessor hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Útgáfudagur

19.5.2014

Spyrjandi

Birgir Ásgeirsson

Tilvísun

Ari Páll Kristinsson. „Á að skrifa Jörð eða jörð?“ Vísindavefurinn, 19. maí 2014. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=67184.

Ari Páll Kristinsson. (2014, 19. maí). Á að skrifa Jörð eða jörð? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=67184

Ari Páll Kristinsson. „Á að skrifa Jörð eða jörð?“ Vísindavefurinn. 19. maí. 2014. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=67184>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...