Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Af hverju heitir generalprufa þessu nafni?

Guðrún Kvaran

Orðið generalprufa er fengið að láni úr dönsku, generalprøve. Í dönsku er orðliðurinn general- meðal annars notaður í merkingunni 'allsherjar-' og er um þá merkingu að ræða í generalprøve. Orðið er bæði í dönsku og íslensku notað í leikhúsmáli um lokaæfingu fyrir frumsýningu leikverks.

Orðið generalprufa er fengið að láni úr dönsku. Orðliðurinn general er meðal annars notaður í merkingunni 'allsherjar-'. Mynd úr leikritinu Júlíus Sesar eftir Shakespeare.

Elsta dæmi Orðabókar Háskólans er frá því rétt fyrir miðja 20. öld. Á Tímarit.is eru elstu dæmi frá því rétt eftir 1900 og eru þau flest notuð í yfirfærðri merkinu um sýnishorn þess sem síðar er í vændum til dæmis á ritvelli eða í stjórnmálastarfi. Sú merking er einnig úr dönsku. Heimildir um lokaæfingu í leikhúsi eru frá svipuðum tíma og dæmi Ritmálssafnsins.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

7.3.2016

Spyrjandi

Hrafnhildur Ýr Árnadóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir generalprufa þessu nafni?“ Vísindavefurinn, 7. mars 2016. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=71246.

Guðrún Kvaran. (2016, 7. mars). Af hverju heitir generalprufa þessu nafni? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=71246

Guðrún Kvaran. „Af hverju heitir generalprufa þessu nafni?“ Vísindavefurinn. 7. mar. 2016. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=71246>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...