Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver er uppruni orðsins kúrbítur?

Guðrún Kvaran

Orðið kúrbítur á rætur að rekja til latínu cucurbita í merkingunni ‘grasker’. Í miðaldalatínu er gert ráð fyrir myndinni *curbita, sem ekki virðist koma fyrir það vitað sé og þess vegna stjörnumerkt.

Í fornháþýsku hét jurtin kurbiz, fengin að láni úr latínu, en í háþýsku heitir hún Kürbis. Í eldri dönsku hét jurtin kyrbis, orðið fengið að láni úr þýsku, en nú er ítalska orðið zucchini næstum einrátt og kyrbis er ekki fletta í Den danske ordbog. Íslenska orðið kúrbítur er þannig aðlagað tökuorð úr dönsku.

Orðið kúrbítur á rætur að rekja til latínu cucurbita í merkingunni ‘grasker’. Uppruni orðanna kúrbíts og zuccinis er hinn sami.

Til fróðleiks má nefna að ítalska orðið zucchini á einnig rætur að rekja til latínu. Það er fleirtölumynd af zucchino ‘ungt grasker’ sem er smækkunarmynd af zucca ‘grasker’. Það er aftur ummyndun af cucuzza sem er afleiðsla af cucurbita. Þannig er uppruni kúrbíts og zuccinis hinn sami.

Heimildir:
  • Ásgeir Blöndal Magnússon, 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók háskólans, Reykjavík. Bls. 518.
  • Politikens etymologisk ordbog. 2000. Politikens forlag. Bls. 688.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

23.6.2016

Spyrjandi

Sverrir Þorgeirsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins kúrbítur?“ Vísindavefurinn, 23. júní 2016. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=72099.

Guðrún Kvaran. (2016, 23. júní). Hver er uppruni orðsins kúrbítur? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=72099

Guðrún Kvaran. „Hver er uppruni orðsins kúrbítur?“ Vísindavefurinn. 23. jún. 2016. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=72099>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...