Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvaða breytingar hafa orðið á tekjutengingu ellilífeyris frá apríl 2013 til september 2016?

Þórólfur Matthíasson

Athugasemd ritstjórnar Vísindavefsins

Þetta svar tilheyrir staðreynda- og samfélagsvakt Vísindavefsins.

Það sama gildir um þessi svör og önnur á Vísindavefnum. Þau eru skrifuð af nafngreindum höfundum sem bera ábyrgð á efni svarsins.

Lesandi sem telur svari áfátt getur bent ritstjórn á það og er svar þá lagfært ef höfundur fellst á það.

Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
FEB vill spyrja fyrir hönd félagsmanna sinna hvort sú fullyrðing fjármála- og efnahagsráðherra um að "fyllilega" hafi verið staðið við afnám allra skerðinga hjá eldri borgurum líkt og lofað var og kom fram í bréfi Bjarna til eldri borgara við lok kosningabaráttunnar árið 2013?

Spurningin vísaði því til nokkurra liða í bréfi Bjarna Benediktssonar frá 22. apríl 2013. Hér er að finna svar við einum lið í bréfinu, um tekjutengingu ellilífeyris.

Bréfið sem fylgdi með fyrirspurninni.

Samkvæmt heimasíðu Tryggingarstofnunar hefur tekjutenging ellilífeyrisgreiðslna breyst með eftirfarandi hætti:

Með lögum nr. 86/2013 var frítekjumark atvinnutekna gagnvart tekjutryggingu og heimilisuppbót hækkað úr 40.000 krónum á mánuði í 109.600 krónur á mánuði.

Þann 1. janúar 2014 voru frítekjumörk vegna lífeyrissjóðstekna ellilífeyrisþega gagnvart tekjutryggingu og heimilisuppbót hækkuð úr 15.800 krónur í 21.600 krónur á mánuði. Þá var skerðingarhlutfall tekna lækkað úr 45% í 38,35%. Samtímis var skerðingarhutfall heimilisuppbótar lækkað úr 13,26% í 11,30%.

Þann 1. janúar 2015 var frítekjumark lífeyristekna gagnvart tekjutryggingu og heimilisuppbót hækkað í 27.400 krónur á mánuði.

Tekjutenging ellilífeyris er hluti af lífeyriskerfi Tryggingarstofnunar.

Þegar aðrar tekjur en atvinnutekjur og fjármagnstekjur að viðbættum atvinnutekjum og fjármagnstekjum að frádregnum 8.220 krónum ná samtals 214.604 krónum á mánuði skerðist grunnlífeyrir frá Tryggingastofnun um 25% af tekjuupphæðinni. Sé ofangreint tekjuviðmið umfram 374.050 krónur á mánuði falla grunnlífeyrisgreiðslur niður.

Tryggingastofnun dregur breytingar sem hafa orðið á skerðingarhlutföllum og frítekjumörkum gagnvart ellilífeyri, tekjutryggingu og heimilisuppbót saman með eftirfarandi hætti í tölvupóstsamskiptum við ritstjóra Staðreyndavaktarinnar:

Ellilífeyrir
Júní 2013
Júlí 2013
Janúar 2014
Janúar 2015
Skerðingarhlutfall
25,00%
25,00%
25,00%
25,00%
Almennt frítekjumark
214.602
214.602
214.602
214.602
Sértækt frítekjumark fjármagnstekna
8.220
8.220
8.220
8.220
Tekjuskerðing vegna lífeyrissjóðstekna
Nei
Nei
Nei

Tekjutrygging
Júní 2013
Júlí 2013
Janúar 2014
Janúar 2015
Skerðingarhlutfall
45,00%
45,00%
38,35%
38,35%
Sértækt frítekjumark lífeyrissjóðstekna
15.800
15.800
21.600
27.400
Sértækt frítekjumark atvinnutekna
40.000
109.600
109.600
109.600
Sértækt frítekjumark fjármagnstekna
8.220
8.220
8.220
8.220

Heimilisuppbót
Júní 2013
Júlí 2013
Janúar 2014
Janúar 2015
Skerðingarhlutfall
13,26%
13,26%
11,30%
11,30%
Sértækt frítekjumark lífeyrissjóðstekna
15.800
15.800
21.600
27.400
Sértækt frítekjumark atvinnutekna
40.000
109.600
109.600
109.600
Sértækt frítekjumark fjármagnstekna
8.220
8.220
8.220
8.220

Samkvæmt ofangreindu skerðist grunnlífeyrir lífeyristrygginga ef atvinnutekjur og/eða fjármagnstekjur fara umfram ákveðið frítekjumark. Tekjutrygging og heimilisuppbót skerðist ef lífeyrissjóðstekjur, atvinnutekjur og/eða fjármagnstekjur fara yfir ákveðin mörk. Tekjutenging ellilífeyris er því hluti af lífeyriskerfi Tryggingarstofnunar.

Mynd:

Höfundur

Þórólfur Matthíasson

prófessor í hagfræði við HÍ

Útgáfudagur

16.9.2016

Spyrjandi

Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni

Tilvísun

Þórólfur Matthíasson. „Hvaða breytingar hafa orðið á tekjutengingu ellilífeyris frá apríl 2013 til september 2016?“ Vísindavefurinn, 16. september 2016. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=72670.

Þórólfur Matthíasson. (2016, 16. september). Hvaða breytingar hafa orðið á tekjutengingu ellilífeyris frá apríl 2013 til september 2016? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=72670

Þórólfur Matthíasson. „Hvaða breytingar hafa orðið á tekjutengingu ellilífeyris frá apríl 2013 til september 2016?“ Vísindavefurinn. 16. sep. 2016. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=72670>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...