Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Var é tvíhljóð fyrr á öldum?

Guðrún Kvaran

Stefán Karlsson handritafræðingur skrifaði árið 1989 ágæta grein sem hann nefndi „Tungan“. Hún birtist síðar í afmælisriti hans árið 2000 og er vísað í það hér. Þar gerði hann grein fyrir þróun tungumálsins, meðal annars sérhljóðakerfisins og skrifaði að á 13. öld hefði é (sem þá var einhljóð) fengið framburðinn íe (og síðar je). Það varð sem sagt í hljóðsögunni að tvíhljóði. (2000:24). Skilgreingin á tvíhljóðum er að um sé að ræða sérhljóð samsett úr tveimur hlutum sem hafa mismunandi hljóðgildi.

É varð í hljóðsögunni að tvíhljóði. Myndin sýnir él.

Við bendum þeim sem vilja lesa um é í nútímamáli á svar Eiríks Rögnvaldssonar við spurningunni Ég er að læra um einhljóð og tvíhljóð og velti fyrir mér hvort é sé?

Heimild:
  • Stefán Karlsson. 2000. Tungan. Í: Stafkrókar. Bls.19–75. Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi: Reykjavík.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

8.3.2017

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Var é tvíhljóð fyrr á öldum?“ Vísindavefurinn, 8. mars 2017. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=72701.

Guðrún Kvaran. (2017, 8. mars). Var é tvíhljóð fyrr á öldum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=72701

Guðrún Kvaran. „Var é tvíhljóð fyrr á öldum?“ Vísindavefurinn. 8. mar. 2017. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=72701>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...