Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað er að „murka“ úr einhverjum lífið?

Guðrún Kvaran

Elstu heimildir um sögnina murka virðast vera frá 19. öld samkvæmt Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans. Merkingin er ‘sarga í sundur, skera með bitlausum hníf, tálga eitthvað niður’. Þannig merkir að murka úr einhverjum lífið að drepa hann hægt og seint. Notkunina má vel sjá af eftirfarandi dæmum sem öll er að finna í Ritmálsskránni:
  • Um síðir fær hann murkað höfuð af bola.
  • en murka ekki úr því [það er félagi] lífið eins og skurðarkind.
  • að murka skuli kind og kind, eptir því sem kláði komi fram í henni.

Murka merkir að ‘sarga í sundur, skera með bitlausum hníf, tálga eitthvað niður’. Myndin er frá 15. öld.

Sögnin er, samkvæmt Íslenskri orðsifjabók (1989:642) skyld nýnorsku murka ‘dútla við, vinna af iðni’, hjaltlensku murk ‘duðra við’, sænskum mállýskum murka, morka ‘klæja’.

Heimildir:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

26.7.2017

Spyrjandi

Atli Snorrason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er að „murka“ úr einhverjum lífið?“ Vísindavefurinn, 26. júlí 2017. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=73039.

Guðrún Kvaran. (2017, 26. júlí). Hvað er að „murka“ úr einhverjum lífið? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=73039

Guðrún Kvaran. „Hvað er að „murka“ úr einhverjum lífið?“ Vísindavefurinn. 26. júl. 2017. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=73039>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...