Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaðan kemur sögnin að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta?

Guðrún Kvaran

Upprunalega spurningin hljóðaði svo:
Er sagnorðið að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta, íslenskt orð? Hvaðan kemur það? Er það tengt enska orðinu solo?

Sögnin að sóla er eitt af mörgum orðum úr erlendu tungumáli sem lagað hefur verið að íslensku. Í þessu tilviki er veitimálið enska. Enska orðið solo getur bæði verið notað sem lýsingarorð og atviksorð um hvaðeina sem innt er af hendi af einum manni. Í knattspyrnu er það notað þegar liðsmaður kemst eða reynir að komast einn með boltann fram hjá andstæðingi.

Enska orðið solo getur bæði verið notað sem lýsingarorð og atviksorð um hvaðeina sem innt er af hendi af einum manni.

Solo er dregið af latneska orðinu solus ‘einn, aleinn’.

Heimildir:
  • Mörður Árnason, Svavar Sigmundsson, Örnólfur Thorsson. 1982. Orðabók um slangur, slettur, bannorð og annað utangarðsmál. Svart á hvítu, Reykjavík.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

13.2.2017

Spyrjandi

Emil Þór Kristinsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur sögnin að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta?“ Vísindavefurinn, 13. febrúar 2017. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=73181.

Guðrún Kvaran. (2017, 13. febrúar). Hvaðan kemur sögnin að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=73181

Guðrún Kvaran. „Hvaðan kemur sögnin að sóla, eins og að sóla einhvern í fótbolta?“ Vísindavefurinn. 13. feb. 2017. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=73181>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...