Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvað halda menn með pomp og prakt?

Guðrún Kvaran

Spurningin í fullri lengd hljóðaði svona:
Það er alltaf talað um að eitthvað sé haldið með pomp og prakt en hvað er þetta pomp og prakt?

Orðasambandið með pomp(i) og prakt er fengið að láni úr dönsku, med pomp og prakt. Í sögulegu dönsku orðabókinni, Ordbog ober det danske sprog, er pomp gefið í merkingunni ‘klæðnaður sem athygli vekur fyrir glæsileik’ og er þar tekið fram að orðið sé þá einkum notað í sambandinu med pomp og prakt. Bæði nafnorðin hafa þar sömu merkingu sem er þá tvítekin.

Pomp virðist enn notað í þessari merkingu í dönsku, samanber Den danske ordbog, sem nær yfir danskt nútímamál, en þar er orðasambandið ekki nefnt. Báðar þessar orðabækur má finna undir dsl.dk. Orðasambandið er ekki heldur í nýlegri orðabók um dönsk orðatiltæki, Talemåder i dansk.

Orðasambandið með pomp(i) og prakt er fengið að láni úr dönsku. Pomp vísar þar til ‘klæðnaður sem athygli vekur fyrir glæsileik’. Á myndinni sést Louise Danadrottning á málverki frá miðri 18. öld eftir Carl Gustaf Pilo.

Í Íslenskri orðabók (2002:1137) er engin merking gefin við pomp, aðeins vísað í orðasambandið með pomp (eða pompi) og prakt. Gefin er upp tvenns konar merking orðasambandsins, annars vegar ‘með mikilli viðhöfn’ en hins vegar ‘fljótt og vel’. Prakt merkir eitt og sér ‘dýrð, viðhöfn’ og þekkist í málinu að minnsta kosti frá því á 17. öld.

Í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er elsta heimild um pomp og prakt úr þýddri bók, Heims Historia sümmerud af Hermanne Fabronio --- kortat og vtdreigit af Jone Guðmundisyne, sem gefin var út 1647.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.12.2017

Spyrjandi

Kristinn Freyr Vídó Þórsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað halda menn með pomp og prakt?“ Vísindavefurinn, 27. desember 2017. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=74628.

Guðrún Kvaran. (2017, 27. desember). Hvað halda menn með pomp og prakt? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=74628

Guðrún Kvaran. „Hvað halda menn með pomp og prakt?“ Vísindavefurinn. 27. des. 2017. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=74628>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...