Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hverjum er ekki fisjað saman?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvað þýðir orðið „fisjað"? Notað einu sinni í svari hér á Vísindavefnum: „Okkur er ekki fisjað saman!"

Sögnin að fisja er aðeins notuð í orðasambandinu einhverjum er ekki fisjað saman í merkingunni ‘einhver er traustur, sterkbyggður’ sem þekkist frá 19. öld. Einnig kemur fyrir sagnmyndin fisa, það er einhverjum er ekki fisað saman en hún er sjaldséðari.

Orðasambandið einhverjum er ekki fisjað saman þekkist frá 19. öld í merkingunni ‘einhver er traustur, sterkbyggður’. Sögnin er hugsanlega skyld nafnorðinu fis 'ögn, hismi, rykkorn'.

Uppruni er ekki fullljós en sögnin er hugsanlega skyld nafnorðinu fis ‘ögn, hismi, rykkorn’. Nafnorðið er fyrri liður í samsetningunni fisléttur ‘mjög léttur, léttur eins og fis’. Ef einhverjum er ekki fisjað saman þá er hann traustari en fisið.

Svarið sem um ræðir:

Geta Íslendingar verið stoltir af einhverju?

Mynd

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

9.5.2018

Spyrjandi

Viðar Eggertsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hverjum er ekki fisjað saman?“ Vísindavefurinn, 9. maí 2018. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=74917.

Guðrún Kvaran. (2018, 9. maí). Hverjum er ekki fisjað saman? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=74917

Guðrún Kvaran. „Hverjum er ekki fisjað saman?“ Vísindavefurinn. 9. maí. 2018. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=74917>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar