Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík
Vísindafélag Íslendinga - 100 ára

Hvað hefur vísindamaðurinn Ívar Örn Benediktsson rannsakað?

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands

Ívar Örn Benediktsson er sérfræðingur við Jarðvísindastofnun Háskólans og aðjúnkt við jarðvísindadeild. Rannsóknir hans eru á sviði ísaldar- og jöklajarðfræði og snúa einkum að landmótun jökla og vexti þeirra og hnignun í tíma og rúmi vegna loftslagsbreytinga.

Megináhersla Ívars hefur verið á nútímajökulumhverfi víðsvegar á Íslandi og nú hin síðari ár á fornjökulumhverfi og virkni ísstrauma á Vestur-, Norður- og Norðausturlandi. Auk þess hefur Ívar tekið þátt í rannsóknarverkefnum í Síberíu og Svíþjóð sem einblínt hafa á jöklunarsögu þessara svæða.

Ívar hefur unnið rannsóknir sínar hérlendis sem erlendis í samvinnu við fjölda vísindamanna frá Norðurlöndunum, Bretlandi og Bandaríkjunum. Má þar nefna rannsóknir á flæði framhlaupsjökla, myndun jökulgarða framan við þá, og myndun og þróun jökulalda við Múlajökul, sem vakið hafa talsverða athygli á undanförnum misserum og fjallað hefur verið um í innlendum og erlendum miðlum. Auk þess má nefna rannsóknir á framrásum skriðjökuls í Borgarfirði á síðasta jökulskeiði, sem einn doktorsnema Ívars, Þorbjörg Sigfúsdóttir, vinnur að. Niðurstöður rannsókna Ívars og félaga hafa birst í ýmsum vísindatímaritum og bókum og vitnað er reglulega til rannsókna þeirra í helstu kennslubókum á sviði jöklajarðfræði.

Ívar tók þátt í viðamiklum rannsóknum við Múlajökul 2009-2015. Myndin er tekin undir lok þriggja vikna leiðangurs 2014.

Ívar Örn fæddist á Akranesi árið 1978. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 1998, BS-prófi frá Háskóla Íslands 2003 og meistaraprófi frá Kaupmannahafnarháskóla 2005. Hann lauk doktorsprófi í jarðfræði frá Háskóla Íslands árið 2010. Rannsóknir Ívars í framhaldsnámi snéru að landmótun framhlaupsjökla og fjallaði doktorsverkefni hans um setgerð, byggingu og myndun jökulgarða við Brúarjökul og Eyjabakkajökul. Að loknu doktorsnámi var Ívar nýdoktor við Jarðvísindastofnun Háskólans áður en hann gegndi stöðu lektors við Jarðfræðideild Lundarháskóla í Svíþjóð 2012-2015.

Ívar hefur lokið námskeiðum í kennslufræði við Háskóla Íslands og Lundarháskóla. Hann hefur sinnt umtalsverðri kennslu á sínu sérsviði, svo sem um setlagafræði jökulumhverfa, landmótun jökla, jöklunar- og loftslagssögu, jarðfræðikortagerð, og komið að kennslu í ýmsum öðrum námskeiðum, meðal annars við Háskólasetrið á Svalbarða og sem prófdómari við Heimskautaháskólann í Tromsö. Þá hefur hann leiðbeint fjölda nemenda í grunn- og framhaldsnámi.

Ívar situr í stjórn NORDQUA (samtök Norrænna kvarterjarðfræðinga) og stýrihópi nýs samstarfsnets um heimskautarannsóknir í kvarterjarðfræði, sem taka mun við af PAST Gateways í apríl 2018.

Mynd:

  • Úr safni ÍÖB.

Útgáfudagur

30.3.2018

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. „Hvað hefur vísindamaðurinn Ívar Örn Benediktsson rannsakað?“ Vísindavefurinn, 30. mars 2018. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=75561.

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. (2018, 30. mars). Hvað hefur vísindamaðurinn Ívar Örn Benediktsson rannsakað? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=75561

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. „Hvað hefur vísindamaðurinn Ívar Örn Benediktsson rannsakað?“ Vísindavefurinn. 30. mar. 2018. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=75561>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...