Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvaða föðurhús eru þetta þegar einhverju er vísað til föðurhúsanna?

Guðrún Kvaran

Með orðinu föðurhús er átt við það heimili sem einhver ólst upp á með foreldrum sínum. Orðasambandið að vísa einhverju aftur til föðurhúsa merkir að ‘vísa einhverju á bug og senda það aftur þangað sem það er upprunnið’. Þannig kemur vísunin í föðurhús. Í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans er til dæmis þessi heimild úr Alþingistíðindum 1925:

vísa e-u (heim) aftur til föðurhúsanna: Jeg leyfi mjer því að vísa aftur til föðurhúsanna þeim aðfinslum sem hún (stjórnin) hefir beint bæði til mín og annara, en sem hún [þ.e. stjórnin] á beinlínis sjálf.

Með orðinu föðurhús er átt við það heimili sem einhver ólst upp á með foreldrum sínum. Orðasambandið að vísa einhverju aftur til föðurhúsa merkir að ‘vísa einhverju á bug og senda það aftur þangað sem það er upprunnið’.

Heimild:

  • Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

21.9.2018

Spyrjandi

Garðar Friðrik Harðarson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvaða föðurhús eru þetta þegar einhverju er vísað til föðurhúsanna?“ Vísindavefurinn, 21. september 2018. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=75982.

Guðrún Kvaran. (2018, 21. september). Hvaða föðurhús eru þetta þegar einhverju er vísað til föðurhúsanna? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=75982

Guðrún Kvaran. „Hvaða föðurhús eru þetta þegar einhverju er vísað til föðurhúsanna?“ Vísindavefurinn. 21. sep. 2018. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=75982>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...