Sólin Sólin Rís 05:22 • sest 21:31 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 23:11 • Sest 05:11 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:38 • Síðdegis: 18:56 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:39 • Síðdegis: 12:46 í Reykjavík
Vísindafélag Íslendinga - 100 ára

Hvað hefur vísindamaðurinn Ingibjörg Harðardóttir rannsakað?

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands

Ingibjörg Harðardóttir er prófessor í lífefna- og sameindalíffræði við Læknadeild Háskóla Íslands. Ingibjörg hefur fyrst og fremst rannsakað bólgu og þá sérstaklega hjöðnun hennar, með hvaða hætti hún á sér stað og hvernig er mögulegt að ýta undir hjöðnun bólgu með fæðu eða náttúruefnum. Bólga er mikilvægt svar líkamans við áreiti, svo sem í vörnum líkamans gegn sýkingum og ýmsum frumuskemmdum. Eftir að bólga hefur náð hámarki er mjög mikilvægt að hún hjaðni því annars er hætt við að hún verði viðvarandi. Þetta er mjög mikilvægt í ljósi þess að viðvarandi bólga er talin eiga þátt í mörgum algengum hrörnunarsjúkdómum, svo sem sjálfsofnæmissjúkdómum, hjarta- og æðasjúkdómum, Alzheimerssjúkdómi og krabbameini.

Rannsóknir Ingibjargar hafa meðal annars sýnt að ómega-3 fitusýrur, sem er helst að finna í fiski og sjávarfangi, ýta undir hjöðnun bólgu. Þær hafa einnig sýnt að náttúrulegar drápsfrumur eru mikilvægar fyrir hjöðnun bólgu og að fækkun þeirra á bólgustað hamlar bólguhjöðnun. Rannsóknir hennar í dag beinast einkum að því að rannsaka með hvaða hætti bólguhjöðnun á sér stað og hvaða hlutverki náttúrulegar drápsfrumur og daufkyrningar spila í hjöðnun bólgu.

Ingibjörg hefur fyrst og fremst rannsakað bólgu og þá sérstaklega hjöðnun hennar, með hvaða hætti hún á sér stað og hvernig er mögulegt að ýta undir hjöðnun bólgu með fæðu eða náttúruefnum.

Ingibjörg vinnur í nánu samstarfi við Jónu Freysdóttur prófessor í ónæmisfræði og á rannsóknastofu þeirra starfa nú þrír doktorsnemar, meistaranemi og rannsóknarsérfræðingur. Ingibjörg og Jóna eru í virku samstarfi við innlenda og erlenda vísindamenn og má þar helst telja Sesselju Ómarsdóttur og Elínu Soffíu Ólafsdóttur prófessora við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, Martin Giera, dósent við Leiden-háskóla í Hollandi og Benedikt Chambers dósent við Karolinska Institutet í Stokkhólmi.

Ingibjörg er höfundur fjölda alþjóðlegra ritrýndra vísindagreina og hefur hlotið viðurkenningar fyrir rannsóknir sínar, meðal annars Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs árið 1998 og árið 2016 fengu hún og samstarfsmenn hennar Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands fyrir nýtt bólguhemjandi efni. Hún hefur gegnt ýmsum stjórnunarstörfum og er nú varadeildarforseti læknadeildar og formaður rannsóknanámsnefndar læknadeildar.

Ingibjörg er fædd árið 1961. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla árið 1980 og BS-prófi í matvælafræði frá Háskóla Íslands árið 1984. Hún var síðan við nám við Cornell-háskóla í New York fylki í Bandaríkjunum, þaðan sem hún lauk MS-námi árið 1988 og doktorsprófi árið 1991. Ingibjörg gegndi starfi nýdoktors við Háskólann í Kaliforníu, San Francisco, San Francisco frá 1991 til 1995, varð sérfræðingur við Háskóla Íslands árið 1995, dósent árið 1998 og prófessor árið 2007.

Myndir:
  • © Kristinn Ingvarsson.

Útgáfudagur

7.9.2018

Spyrjandi

Ritstjórn

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. „Hvað hefur vísindamaðurinn Ingibjörg Harðardóttir rannsakað? “ Vísindavefurinn, 7. september 2018. Sótt 24. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=76276.

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. (2018, 7. september). Hvað hefur vísindamaðurinn Ingibjörg Harðardóttir rannsakað? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=76276

Ritstjórn Vísindavefsins og Vísindafélag Íslands. „Hvað hefur vísindamaðurinn Ingibjörg Harðardóttir rannsakað? “ Vísindavefurinn. 7. sep. 2018. Vefsíða. 24. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=76276>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...