Orðasambandið merkir orðrétt að fella einhvern og halda honum niðri með hnénu. Það er einnig notað í yfirfærðri merkingu um að fylgja eftir sigri, sem unnist hefur, oft á harðneskjulegan hátt.
Kviður merkir ‛magi’ og má sjá fyrir sér mann liggja á bakinu eftir fall í átökum og annan sem heldur honum niðr...
Orðið málsháttur er þannig skýrt: ‛orðskviður, spakmæli’. Oft er um fleyg orð að ræða sem lögð eru í munn einhverjum, sem ekki er endilega þekktur lengur, eða fengin eru úr einhverri sögu. Oftast er um heilar setningar að ræða. Dæmi um málshátt er „Oft eru flögð undir fögru skinni“, sem sóttur er til Eyrbygg...
Refskák er sérstakt tafl sem tveir tefla. Góð lýsing er á leikreglum í bókinni Íslenzkar gátur, skemtanir, vikivakar og þulur sem Jón Árnason og Ólafur Davíðsson söfnuðu til á 19. öld. Refskák er lýst í öðrum hluta verksins á blaðsíðu 298-299.
Yfirleitt áttu menn ekki sérstakt taflborð heldur krítuðu á fjöl eð...
Nær allar konur finna einhvern tímann á ævinni fyrir verkjum í tengslum við blæðingar, svokölluðum tíðaverkjum eða tíðaþrautum (e. dysmenorrhea, menstrual cramps). Um eða yfir helmingur kvenna finnur reglulega fyrir tíðaverkjum og um 10-15% kvenna finna fyrir mjög slæmum verkjum, jafnvel þannig að það raskar dag...
Fullt nafn Múhameðs spámanns er Abu al-Qasim Muhammad ibn ‘Abd Allah ibn ‘Abd al-Mut talib ibn Hashim.
Samkvæmt arabískri nafnvenju eru börn yfirleitt kennd við föður eins og á Íslandi. Ibn 'Umar merkir sonur 'Umars (Ómars) og bint 'Abbas er dóttir 'Abbasar. Ein af fáum undantekningum frá þessari venju er þega...
Í forníslenskum heimildum er ítarlegustu lýsinguna á því hvernig menn sórust í fóstbræðralag að finna í 6. kafla Gísla sögu Súrssonar. Þar ganga í fóstbræðralag svonefndir Haukdælir úr Dýrafirði, Gísli, bróðir hans Þorkell, mágur þeirra Þorgrímur Þorsteinsson goðorðsmaður og Vésteinn Vésteinsson, mágur Gísla. Viná...
Naflastrengur er strengur sem tengir fóstur í móðurkviði við legköku, en legkakan er sérstakt, tímabundið líffæri í legveggnum. Legkakan tengir saman fóstur og móður, en þar mætast blóðrásir þeirra án þess þó að blandast.
Naflastrengurinn er í raun hluti af fóstrinu. Efnið í honum er hlaupkennt og þar er mikil...
Dadaismi og súrrealismi eiga það sameiginlegt að rísa upp gegn ríkjandi hefðum í lífi og list og boða nýtt upphaf. Dadaisminn, sprottinn upp úr vitfirringu heimstyrjaldarinnar fyrri sem andsvar og endurspeglun í senn, telst vera undanfari hins síðarnefnda en gengur vissulega lengra og er að því leyti sjálfum sér s...
Orðið renta er notað um vexti eða ávöxtun á fjármunum eða öðrum verðmætum. Það er tökuorð úr dönsku rente í sömu merkingu frá 16. öld.
Orðatiltækið að bera nafn með rentu merkir að 'heita eitthvað með réttu, standa undir nafni sínu'. Það er til í fleiri en einni gerð. Hin elsta í safni Orðabókar Háskólans er að...
Appelsínuhúð (e. cellulite) er sérstök áferð á húðinni sem minnir á appelsínubörk í útliti. Þessi áferð stafar af byggingu vefja í undirhúðinni. Þar er um að ræða afbrigði af fituvef sem ásamt bandvef myndar bylgjur.
Appelsínuhúð er sérstök áferð á húðinni sem minnir á appelsínubörk
Í öllum fituvef og öðrum ...
Kettir geta veikst rétt eins og öll önnur dýr. Margir vel þekktir sjúkdómar leggjast á ketti, bæði smitsjúkdómar og sjúkdómar af erfðafræðilegum toga.
Meðal helstu einkenna sem koma fram hjá veikum ketti eru minni matarlyst og aukin svefnþörf. Kettir eru í eðli sínu afar íhaldssamir og því getur verið auðvelt...
Sérstakar refsingar fyrir þungunarrof hafa legið fyrir á Íslandi allt frá árinu 1734 þegar norsk lög Kristjáns konungs V. urðu gildandi réttarheimild í íslenskum rétti. Þau giltu þó eingöngu um fóstur sem getin voru utan hjónabanda, um annars konar þungunarrof giltu almenn ákvæði um manndráp.
Í almennum hegning...
Nýburar tárast ekki. Ástæðan er sú að táragöng þeirra eru ekki fullmynduð. Þegar börn eru um það bil mánaðar gömul hafa táragöngin náð fullum þroska og þá koma tár þegar þau gráta.
Grátur er eina leið ungbarna til að tjá tilfinningar sínar en honum fylgja þó ekki alltaf tár þótt táragöngin hafi náð fullum þrosk...
Það er í raun ekki hægt að ákvarða nákvæmlega hvers lags skepna gleypti Jónas. Í hebreska textanum er einfaldlega talað um „stóran fisk“, dag gadol, en dag hefur almenna skírskotun til hvers konar fisks sem vera kann. Þar með er auðvitað ekki útilokað að höfundurinn hafi haft hval í huga enda ekki ólíklegt að menn...
Allar þungaðar konur þurfa að láta mæla reglulega blóðþrýsting og magn eggjahvítuefna í þvagi. Þetta er gert til að fylgjast með því hvort konan fái meðgöngueitrun.
Enn er ekki vitað hvers vegna um það bil ein af hverjum tíu konum fá meðgöngueitrun. Þess ber þó að geta að einungis ein af hverjum hundrað þunguð...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!