Sögnin “að vera” getur haft þrjár mismunandi merkingar sem hljóta mismunandi meðhöndlun í rökfræði. "Að vera" má ýmist nota til að mynda umsögn, tilvistarstaðhæfingu eða staðhæfingu um samsemd. Þessu er best lýst með dæmum:
Umsögn:
"Snælda er köttur."
Hér er sagnorðið notað til að mynda umsögnina “að vera köt...
Þessari spurningu er nánast ómögulegt að svara. Eðlileg setning þarf að hafa frumlag, umsögn og (helst) andlag eða forsetningarlið. Þess vegna er ekki hægt að hrúga saman röð af skammstöfunum og fá vit úr setningunni.
Eðli skammstafana er að stytta algenga liði innan setningar í ritun en ekki tali. Vel má hugs...
Í dag eru hreindýr aðeins á Austurlandi en svo var ekki alltaf. Hreindýr voru flutt til Íslands frá norður Noregi í fjórum hópum á árunum 1771-87. Þrír fyrstu hóparnir sem fluttir voru til landsins, það er að segja til Vestmannaeyja og Rangárvallasýslu árið 1771, Reykjaness árið 1777 og til Norðurlands árið 1784, ...
Rökfræði fjallar um það hvenær eina setningu, sem við köllum niðurstöðu, leiðir af öðrum setningum, sem við köllum þá forsendur. Og ástæðan fyrir því að rökfræði getur verið flókin er í sem stystu máli sú að það getur verið flókið mál hvenær niðurstöðu leiðir af gefnum forsendum.
Aþenuskólinn e. Rafael. Aristótel...
Svarið við þessari spurningu er einfalt ef miðað er við orðanna hljóðan: Það eru næstum 100% líkur á því að Snæfellsjökull gjósi.
Megineldstöðin Snæfellsjökull ber öll merki þess að vera virk. Hún hefur gosið nokkrum sinnum á síðustu 10.000 árum og er ein af um það bil 30 virkum megineldstöðvum á Íslandi. ...
Upphafleg spurning var í heild sem hér segir: Er það rétt að Darwin hafi sett kenningu sína fram, en seinna afneitað henni á þeim grundvelli að hún sé guðlast og röng, vegna eigin trúarskoðana?Svarið er nei; þetta er ekki rétt.
Þróunarkenningin eins og við þekkjum hana var upphaflega sett fram í fyrirlestri í L...
Upprunalega spurningin var: Hver er ástæðan við banni á innflutningi á tarantúlum?
Sú meginregla gildir á Íslandi að innflutningur hvers kyns dýra er bannaður samkvæmt 1. mgr. 2. gr. laga um innflutning dýra.[1] Tarantúlur falla undir þessa grein og því er innflutningur þeirra bannaður.
Undantekning er gerð...
Líklegt er að flestir fornleifafræðingar hafi haldið á málmleitartæki að minnsta kosti einu sinni, enda leitar fornleifafræðin mjög oft til annarra tækni- og vísindagreina þegar kemur að framþróun.
Fornleifafræði er fjölbreytt fag, enda eru margar hliðar á hinu liðna. Fornleifafræðingar rannsaka allt frá samein...
Til þess að svara þessari spurningu verður að horfa allmarga áratugi aftur í tímann. Rétt er byrja á því að staldra við árið 1925 þegar samþykkt voru lög á Alþingi sem meinuðu fólki að taka upp ný ættarnöfn. Segja má að þetta ákvæði sé að vissu leyti enn í gildi. Í stuttu máli sagt þá má halda því fram að lagasetn...
Þann 5. janúar 1813, nákvæmlega fjórum mánuðum áður en Søren Aabye Kierkegaard fæddist, varð allsherjarefnahagshrun í Danmörku. Einn fárra danskra kaupsýslumanna sem komst því sem næst klakklaust í gegnum fjárhagserfiðleikana sem fylgdu í kjölfarið var faðir hans, Michael Pedersen Kierkegaard (1756-1838). Hann var...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:
Hver var fyrsti leikari Íslands og getur þú sagt mér eitthvað frá honum eða henni?
Hvað gerir einstakling að leikara? Er það sá sem hefur viðurværi sitt af leiklist? Eða sá sem hefur menntun á sviði leiklistar? Það er varla fyrr en með opnun Þjóðleikhússins árið 1950 se...
Í reglugerð um innflutning gæludýra og hundasæðis (935/2004) segir meðal annars:Óheimilt er að flytja til landsins:
a) Hvolpafullar tíkur.
b) Kettlingafullar læður.
c) Tíkur með hvolpa á spena.
d) Læður með kettlinga á spena.
e) Dýr sem hafa undirgengist aðgerðir fyrir innflutning og þarfnast eftirlits eða...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!