Landsvæði eru líka oft skilgreind með stjórnsýslulegum mörkum, til dæmis er hægt að nota mörk sveitarfélaga, umdæmi sýslumanna eða þá kjördæmamörk. Ef kjördæmamörk eru notuð til að ákvarða flatarmál Vestfjarða verður útkoman aðeins önnur en ef landfræðileg skilgreining er notuð. Í dag nær Vestfjarðakjördæmi frá botni Gilsfjarðar og að botni Hrútafjarðar, sem eru um 9.400 ferkílómetrar (km2) eða um 9,1% af flatarmáli alls landsins. Í framtíðinni verður þó ekki hægt að nota þessa skilgreiningu því að í næstu alþingiskosningum verður kosið eftir nýrri kjördæmaskipan þar sem Vestfirðir verða sameinaðir stórum hluta núverandi kjördæma Vesturlands og Norðurlands vestra. Upplýsingar um stærð sveitarfélaga og stjórnsýsluumdæma sýslumanna á Íslandi má nálgast á vefsetri Landmælinga Íslands.
Mynd: HB