Spurning
Hvert er strjálbýlasta land í heimi?
Spyrjandi
Logi Ingólfsson
Svar
Ef við skoðum kort sem sýnir hvernig mannkynið dreifist um jörðina kemur berlega í ljós að dreifingin er langt frá því að vera jöfn. Raunin er sú að um helmingur jarðarbúa býr á um 5% af þurrlendi jarðar og um 90% mannkyns býr á tæplega 20% þurrlendis.
Um það bil þriðjungur af þurrlendi jarðar er óbyggður. Þar ber helst að nefna Suðurskautslandið, fimmtu stærstu heimsálfu jarðar. Þar eru reyndar rannsóknastöðvar sem vísindamenn dvelja í um lengri eða skemmri tíma en enginn telst með fasta búsetu þar. Í flestum löndum heims eru einhver svæði óbyggð eða mjög strjálbýl, oftast af náttúrufarslegum aðstæðum. Þetta eru til dæmis svæði þar sem loftslag er of þurrt, of kalt eða of úrkomusamt til þess að vænlegt sé að búa þar. Einnig svæði þar sem jarðvegur er of þunnur eða ófrjósamur eða landið of bratt og fjalllent.
Þegar talað er um þéttleika byggðar er verið að vísa í hversu margir íbúar búa á ákveðinni flatareiningu og er yfirleitt miðað við fjölda íbúa á hvern ferkílómetra. Það fer allt eftir samhenginu hvers konar svæði er tekið fyrir. Algengt er að skoða þéttleika byggðar í ákveðnu landi en einnig er hægt að taka fyrir afmörkuð svæði innan landa, þéttleika byggðar í borgum og bæjum, í dreifbýli og svo framvegis. Það eina sem þarf að liggja fyrir er fjöldi íbúa á þessu afmarkaða svæði og flatarmál svæðisins.
Á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna er að finna lista yfir þéttleika byggðar í löndum heims og er þá ekki aðeins horft á sjálfstæð ríki heldur líka afmörkuð svæði sem stjórnarfarslega heyra undir önnur ríki. Samkvæmt þeim upplýsingum eru 10 strjálbýlustu lönd heims eftirtalin:
| Land | Fjöldi íbúa á km2 |
| Grænland | 0,03 |
| Falklandseyjar | 0,25 |
| Vestur-Sahara | 1,16 |
| Mongólía | 1,66 |
| Franska Gvæjana | 1,98 |
| Namibía | 2,41 |
| Ástralía | 2,56 |
| Súrínam | 2,67 |
| Ísland | 2,81 |
| Máritanía | 2,83 |
Samkvæmt þessum lista er Grænland strjálbýlasta land jarðar með 0,03 íbúa á hvern ferkílómetra. Þar á eftir koma Falklandseyjar með 0,25 íbúa/km2 og Vestur-Sahara með 1,16 íbúa/km2. Eins og sjá má er Ísland í 9. sæti á þessum lista og það er eina Evrópulandið sem kemst á blað.
Heimildir og myndir:
- Fellmann, Jerome ofl. 1990. Human geography - Landscape of Human Activity. Dubuque, IA: Wm. C. Brown
- Östman, Peter ofl. 2000. Landafræði - maðurinn, auðlindirnar, umhverfið. Reykjavík: Mál og menning
- Heimasíða Sameinuðu þjóðanna
- Socioeconomic Data and Applications Center
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur27.1.2004
Flokkun:
Tilvísun
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir. „Hvert er strjálbýlasta land í heimi?“. Vísindavefurinn 27.1.2004. http://visindavefur.is/?id=3970. (Skoðað 19.6.2013).
Höfundur
Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttirlandfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins





