Spurning
Hvar fáið þið öll svörin við spurningunum? Kannski á Vísindavefnum?
Spyrjandi
Harpa Rún Eysteinsdóttir, f. 1988
Svar
Spyrjandi á varla við það að við fáum svörin á þessum vísindavef, því að upphaflega voru hér engin svör! Líklega er átt við það að við fáum svörin á Veraldarvefnum og það er rétt í sumum tilvikum.Stundum veit höfundur svars strax hvert svarið við spurningunni er og þarf ekki annað en að skrifa það niður og slípa það til með tilliti til málfars og framsetningar. Oftast þarf hann þó eitthvað að rifja upp í bókum eða ritum og ef til vill bera sig saman við starfssystkin. Einnig getur hann þurft að afla sér vitneskju sem hann hefur aldrei kynnt sér áður. Og hann getur líka þurft að hugleiða efnið, meðal annars með tilliti til skýrleika svarsins og samhengis.
Nú á dögum er sem kunnugt er um margar leiðir að velja til að afla sér upplýsinga. Hinar hefðbundnu heimildir eru kennslubækur og aðrar fræðibækur, handbækur og tímarit. Íslendingar hafa löngum búið illa með slíkt vegna lítilla fjárveitinga til fræðilegra bókasafna. Hins vegar er núna líka hægt að fara á veraldarvefinn og athuga fjölmörg vefsetur þar sem gögnum og upplýsingum hefur verið safnað saman í einn stað. Höfundar svara notfæra sér oft þessa leið svo sem sjá má merki um í tilvísunum þegar svo ber undir.
Meðal annars eru á veraldarvefnum nokkrir spurningabankar svipaðir þessum, og við notum þá dálítið þegar við semjum svör. Ýmsir þeirra eru nefndir á tenglasíðu Vísindavefsins.
Sjá einnig svar ÞV við spurningunni Hvernig vitið þið svona mikið?
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur13.5.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
ÞV. „Hvar fáið þið öll svörin við spurningunum? Kannski á Vísindavefnum?“. Vísindavefurinn 13.5.2000. http://visindavefur.is/?id=410. (Skoðað 19.5.2013).
Höfundur
ÞVprófessor emeritus, ritstjóri Vísindavefsins 2000-2010 og ritstjóri Evrópuvefsins 2011




