Spurning

Erum við einu dýrin sem missa tennurnar og fá svo nýjar?

Spyrjandi

Búi Bjarmar
Erla Steinþórsdóttir
Jóhann Viðar
Ingimundur S. Sverrisson
7. - 8. bekkur Grunnskóla Borgarfjarðar

Svar

Hér er einnig svarað spurningunum:
  • Vaxa tennur katta og hunda alla þeirra ævi?
  • Geta kettir misst tennurnar?
  • Eru mennirnir eina tegundin sem missir tennur (barnatennur) til að fá aðrar stærri?
Menn eru alls ekki einu lífverurnar sem missa mjólkurtennurnar og fá nýtt sett í staðinn. Það sama gerist hjá algengustu gæludýrum okkar, til dæmis hjá hundum og köttum. Reyndar er það svo að flest spendýr fá tvö sett af tönnum yfir ævina. Á máli dýrafræðinnar kallast þetta diphyodont.

Til eru dýr sem eru monophydont, það er að segja fá bara eitt sett af tönnum yfir ævina. Þetta eru dýr eins og bjórar en tennur þeirra vaxa alla ævina.


Tanngarður á Nílarkrókódíl.

Þriðji hópurinn nefnist á fræðimáli polyphyodont. Í þessum flokki eru dýr sem fá mörg ný sett af tönnum yfir ævina. Hákarlar og krókódílar eru góð dæmi um slík dýr en þessi háttur er algengur meðal skriðdýra og fiska.

Mynd: Nature-Wildlife Nile Crocodile Page

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur21.6.2004

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Erum við einu dýrin sem missa tennurnar og fá svo nýjar?“. Vísindavefurinn 21.6.2004. http://visindavefur.is/?id=4358. (Skoðað 3.9.2010).

Höfundur

Jón Már Halldórssonlíffræðingur



Leit