Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Af hverju eru Tsjetsjenar svona harðir bardagamenn?

Guðmundur Ólafsson

Félagslegar, sögulegar og trúarlegar ástæður valda því að Tsjetsjenar eru miklir stríðsmenn. Hugrekki þeirra er við brugðið, en mannslífið er ekki mikils virði í þeirra augum. Þeir hafa nær alltaf átt í blóðugum átökum við nágranna sína og þá sem hafa lagt þá undir sig. Rússar, en á undan þeim Persar og Tyrkir, hafa háð við þá mjög grimmúðleg stríð. Mannrán vegna þrælahalds og lausnargjalda hafa verið stunduð á þessum slóðum frá ómunatíð.

Ljósmynd eftir Laurent Van der Stockt frá borginni Grosní árið 1996.

Herská trúarbrögð ýta og undir hernaðarhyggju Tsjetsjena, og þeir hafa þróað þau enn frekar í þá átt. Þeir hafa margir unnið fyrir sér sem hermenn í her Rússa fyrr og síðar. Við þetta bætist svo að vopnaburður er nánast karlmennskutákn meðal þeirra og eiga þeir oft í blóðugum ættflokkaátökum, en hugmyndir um réttarríki og lögræði eru ekki þróaðar meðal þeirra. Tsjetsjenskur málsháttur segir: „Vopnlaus maður er sem kona með skegg.“

Hægt er lesa meira um átökin í Tsjetsjeníu í svari sama höfundar við spurningunni:

Frekara lesefni á Vísindavefnum:

Heimild og mynd:
  • Garrett, Thomas M., At the Edge of the Empire. The Terek Cossacks and the North Caucasus Frontier 1700-1860, Westview Press, Oxford 1999, bls. 89.
  • HRW Annual Report 2000. Skoðað 30.9.2004.

Höfundur

lektor í viðskipta- og hagfræðideild HÍ

Útgáfudagur

30.9.2004

Spyrjandi

Gísli Jón Hjartarson

Tilvísun

Guðmundur Ólafsson. „Af hverju eru Tsjetsjenar svona harðir bardagamenn? “ Vísindavefurinn, 30. september 2004. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4537.

Guðmundur Ólafsson. (2004, 30. september). Af hverju eru Tsjetsjenar svona harðir bardagamenn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4537

Guðmundur Ólafsson. „Af hverju eru Tsjetsjenar svona harðir bardagamenn? “ Vísindavefurinn. 30. sep. 2004. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4537>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...