Spurning

Hvað þarf að gera til að fá starfsréttindi sem sálfræðingur á Íslandi?

Spyrjandi

Margrét Ragna. f. 1988

Svar

Titillinn sálfræðingur er lögverndað starfsheiti. Samkvæmt lögum um sálfræðinga nr. 40/1976 mega þeir einir kallast sálfræðingar sem fengið hafa til þess leyfi heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins. Brot gegn lögunum geta varðað fjársektum og jafnvel fangelsisvist.

Til að fá starfsréttindi sem sálfræðingar verða menn að uppfylla viss skilyrði. Að öllu jöfnu er krafist framhaldsmenntunar í sálfræði eða sálfræðilegri uppeldisfræði. Nefnd á vegum Sálfræðingafélags Íslands sér um að afla upplýsinga um hvort umsækjendur um starfsleyfi uppfylli menntunar- og hæfniskröfur. Miðað er við að námið sé bæði fræðilegt og verklegt, og að umsækjandi hafi einhverja reynslu af sálfræðilegum rannsóknum.


Á myndinni má sjá ýmsa þekkta sálfræðinga, svo sem Wilhelm Wundt, William James og B. F. Skinner, sem og aðra merkilega menn úr sögu sálfræðinnar.

Þar til fyrir nokkrum árum þurftu menn að sækja sér framhaldsmenntun í sálfræði erlendis, en hér á Íslandi er nú boðið upp á tveggja ára cand. psych. nám sem gefur sálfræðingsréttindi. Til þess að mega innritast í námið er miðað við að menn hafi lokið þriggja ára B.A. námi í sálfræði við Háskóla Íslands eða öðru sambærilegu námi, og útskrifast með fyrstu einkunn hið minnsta (það er með einkunn yfir 7,25). Aðsóknin er mikil en takmarkaður fjöldi fólks kemst að ár hvert. Af þeirri ástæðu, meðal annarra, er enn algengt að fólk sæki sér framhaldsmenntun í öðrum löndum heims.

Mynd: Classics in the history of psychology.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur30.9.2005

Tilvísun

Heiða María Sigurðardóttir. „Hvað þarf að gera til að fá starfsréttindi sem sálfræðingur á Íslandi? “. Vísindavefurinn 30.9.2005. http://visindavefur.is/?id=5299. (Skoðað 19.6.2013).

Höfundur

Heiða María SigurðardóttirB.A. í sálfræði og doktorsnemi í taugavísindum við Brown University



Leit


Vísindadagatalið

György Lukács
(1885-1971)
( Fyrri Næsti )

Ungverskur heimspekingur, bókmenntafræðingur og marxisti, einn af höfundum vestræns marxisma. Fjallaði m.a. um hlutgervingu, stéttarvitund og um raunsæi í bókmenntum.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013