Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Hvað getið þið sagt mér um persónuleika, uppeldi og meðgöngu þýskra fjárhunda?

Jón Már Halldórsson

Þýski fjárhundurinn (e. German Shepherd, Alsatian, þ. Schäferhund) er sennilega frægasta hundakyn sem komið hefur frá Þýskalandi. Þessir hundar eru annálaðir fyrir trygglyndi, greind, hugrekki og aðlögunarhæfni. Þeir henta ákaflega vel til þjálfunar og eru mikið notaðir til lögreglu- og herstarfa, sem leitar- og björgunarhundar og einnig sem blindrahundar.

Þjóðverjinn Max von Stephanitz ræktaði þýska fjárhundinn upphaflega til að sinna fjárgæslu, eins og nafnið gefur til kynna. Von Stephanitz hafði afburða þekkingu á ýmsum þáttum sem sneru að líffærafræði og þróun spendýra, og þá sérstaklega rándýra (carnivora), og tókst með mikilli vinnu að rækta þetta hundakyn undir lok 19. aldar. Þýsku fjárhundarnir urðu fljótlega vinsælir, og ekki bara innan þýsku landamæranna, heldur breiddust þeir fljótt út til nágrannaríkja og nú eru þeir algengir um allan heim.

Reyndar eru menn ekki alveg sammála um forsögu þýska fjárhundsins áður en von Stephanitz kom til. Sumir segja að kynið eiga uppruna sinn í æxlun mismunandi fjárhunda í Þýskalandi um nokurra alda skeið, en aðrir telja að það hafi komið fram vegna pörunnar þýskra fjárhunda af ákveðnu kyni sem nú er útdautt, og úlfa, sem voru algengir í skóglendi Þýskalands fyrr á öldum. Menn eru þó sammála um að von Stephanitz hafi lokið verkinu og kallað fram þá eiginleika sem þýski fjárhundurinn er þekktur fyrir.

Von Stephanitz kynnti þýska fjárhundinn, eins og við þekkjum hann, á sýningu í Hannover árið 1882. Hann stofnaði ennfremur fyrsta hundaræktarfélagið í kringum þetta nýja hundakyn sitt og nefndist það Verein für Deutsche Schäferhunde (SV), stofnsett 22. Apríl 1899. Í Bandaríkjunum var fyrsta félagið kringum þýska fjárhundinn stofnað 1913, The German Shepherd Dog Club of America, og er enn starfandi eftir því sem höfundur best veit.




Þýski fjárhundurinn er mjög umburðarlyndur. Margir hafa haft dýr af öðrum tegundum á heimili með þeim, svo sem ketti, og virðist slíkt sambýli oft heppnast vel. Þýskir fjárhundar eru varir um sig meðal ókunnugra en fyrst og fremst eru þeir vinnuhundar, þeir þurfa að vera sístarfandi og þess vegna er mikilvægt að fólk sem fær sér þýskan fjárhund, sinni honum vel og sjái honum fyrir mjög mikilli hreyfingu.

Aðalsmerki þýskra fjárhunda er húsbóndahollusta og það hversu auðvelt er að þjálfa þá. Góður fjárhundur er ekki fjandsamlegur við ókunnuga en er öruggur með sig og stendur á sínu. Hundarnir sýna börnum umhyggju og gæta þeirra stundum eins og þau væru lömb eða kiðlingar. Börn geta hamast í þýskum fjárhundum þar sem þeir eru ákaflega jafnlyndir, en ekki er rétt að mæla með slíkum látum undir venjulegum kringumstæðum, nema börnin þekki vel til viðkomandi hunds. Samskipti hunds og barna eru háð einstaklingsbundnum eiginleikum dýrs og manns og skyldi fara að öllu með gát í því sambandi. Helst á ekki að skilja þýska fjárhunda, eða aðra öfluga hunda, eina með börnum.

Meðgöngutíminn er jafn langur og hjá öðrum hundum enda um eina og sömu tegund að ræða. Hann er á bilinu 56-73 dagar eða að meðaltali 63 dagar.

Varðandi þjálfun og uppeldi þeirra er best að vísa beint á heimasíðuna www.schafer.is.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Jón Már Halldórsson

líffræðingur

Útgáfudagur

2.5.2003

Spyrjandi

Jóna Björk Jónsdóttir, f. 1991

Tilvísun

Jón Már Halldórsson. „Hvað getið þið sagt mér um persónuleika, uppeldi og meðgöngu þýskra fjárhunda?“ Vísindavefurinn, 2. maí 2003. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=3381.

Jón Már Halldórsson. (2003, 2. maí). Hvað getið þið sagt mér um persónuleika, uppeldi og meðgöngu þýskra fjárhunda? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=3381

Jón Már Halldórsson. „Hvað getið þið sagt mér um persónuleika, uppeldi og meðgöngu þýskra fjárhunda?“ Vísindavefurinn. 2. maí. 2003. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=3381>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvað getið þið sagt mér um persónuleika, uppeldi og meðgöngu þýskra fjárhunda?
Þýski fjárhundurinn (e. German Shepherd, Alsatian, þ. Schäferhund) er sennilega frægasta hundakyn sem komið hefur frá Þýskalandi. Þessir hundar eru annálaðir fyrir trygglyndi, greind, hugrekki og aðlögunarhæfni. Þeir henta ákaflega vel til þjálfunar og eru mikið notaðir til lögreglu- og herstarfa, sem leitar- og björgunarhundar og einnig sem blindrahundar.

Þjóðverjinn Max von Stephanitz ræktaði þýska fjárhundinn upphaflega til að sinna fjárgæslu, eins og nafnið gefur til kynna. Von Stephanitz hafði afburða þekkingu á ýmsum þáttum sem sneru að líffærafræði og þróun spendýra, og þá sérstaklega rándýra (carnivora), og tókst með mikilli vinnu að rækta þetta hundakyn undir lok 19. aldar. Þýsku fjárhundarnir urðu fljótlega vinsælir, og ekki bara innan þýsku landamæranna, heldur breiddust þeir fljótt út til nágrannaríkja og nú eru þeir algengir um allan heim.

Reyndar eru menn ekki alveg sammála um forsögu þýska fjárhundsins áður en von Stephanitz kom til. Sumir segja að kynið eiga uppruna sinn í æxlun mismunandi fjárhunda í Þýskalandi um nokurra alda skeið, en aðrir telja að það hafi komið fram vegna pörunnar þýskra fjárhunda af ákveðnu kyni sem nú er útdautt, og úlfa, sem voru algengir í skóglendi Þýskalands fyrr á öldum. Menn eru þó sammála um að von Stephanitz hafi lokið verkinu og kallað fram þá eiginleika sem þýski fjárhundurinn er þekktur fyrir.

Von Stephanitz kynnti þýska fjárhundinn, eins og við þekkjum hann, á sýningu í Hannover árið 1882. Hann stofnaði ennfremur fyrsta hundaræktarfélagið í kringum þetta nýja hundakyn sitt og nefndist það Verein für Deutsche Schäferhunde (SV), stofnsett 22. Apríl 1899. Í Bandaríkjunum var fyrsta félagið kringum þýska fjárhundinn stofnað 1913, The German Shepherd Dog Club of America, og er enn starfandi eftir því sem höfundur best veit.




Þýski fjárhundurinn er mjög umburðarlyndur. Margir hafa haft dýr af öðrum tegundum á heimili með þeim, svo sem ketti, og virðist slíkt sambýli oft heppnast vel. Þýskir fjárhundar eru varir um sig meðal ókunnugra en fyrst og fremst eru þeir vinnuhundar, þeir þurfa að vera sístarfandi og þess vegna er mikilvægt að fólk sem fær sér þýskan fjárhund, sinni honum vel og sjái honum fyrir mjög mikilli hreyfingu.

Aðalsmerki þýskra fjárhunda er húsbóndahollusta og það hversu auðvelt er að þjálfa þá. Góður fjárhundur er ekki fjandsamlegur við ókunnuga en er öruggur með sig og stendur á sínu. Hundarnir sýna börnum umhyggju og gæta þeirra stundum eins og þau væru lömb eða kiðlingar. Börn geta hamast í þýskum fjárhundum þar sem þeir eru ákaflega jafnlyndir, en ekki er rétt að mæla með slíkum látum undir venjulegum kringumstæðum, nema börnin þekki vel til viðkomandi hunds. Samskipti hunds og barna eru háð einstaklingsbundnum eiginleikum dýrs og manns og skyldi fara að öllu með gát í því sambandi. Helst á ekki að skilja þýska fjárhunda, eða aðra öfluga hunda, eina með börnum.

Meðgöngutíminn er jafn langur og hjá öðrum hundum enda um eina og sömu tegund að ræða. Hann er á bilinu 56-73 dagar eða að meðaltali 63 dagar.

Varðandi þjálfun og uppeldi þeirra er best að vísa beint á heimasíðuna www.schafer.is.

Heimildir og myndir:...