Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík

Úr hverju er húðin?

JGÞ

Húðin er úr nokkrum mismunandi vefjum. Yst er þunnt hornlag sem er að mestu gert úr þekjuvefsfrumum.

Frumurnar eru dauðar yst á hornlaginu en dýpra eru þær lifandi og skipta sér stöðugt og endurnýja þannig ysta lagið. Húðfruma lifir að meðaltali í 20-50 daga.

Hornlagið gegnir meðal annars því hlutverki að verja undirliggjandi hluta húðarinnar gegn örverum og vatni.

Undir hornlaginu er þykk leðurhúð sem er aðallega gerð úr bandvef. Í leðurhúðinni eru einnig taugaendar, æðar, hársekkir, svita- og fitukirtlar og smágerðir vöðvar.

Húðin er stærsta líffæri líkamans. Í fullorðnum manni vegur hún um 5 kílógrömm og yfirborð hennar er um 2 fermetrar.

Hægt er að lesa nánar meira um húðina í svörum við eftirfarandi spurningum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur.

Höfundur

Jón Gunnar Þorsteinsson

bókmenntafræðingur og ritstjóri Vísindavefsins

Útgáfudagur

17.3.2004

Spyrjandi

Stefanía Thorarensen, f. 1994

Tilvísun

JGÞ. „Úr hverju er húðin?“ Vísindavefurinn, 17. mars 2004. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=4066.

JGÞ. (2004, 17. mars). Úr hverju er húðin? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=4066

JGÞ. „Úr hverju er húðin?“ Vísindavefurinn. 17. mar. 2004. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=4066>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Úr hverju er húðin?
Húðin er úr nokkrum mismunandi vefjum. Yst er þunnt hornlag sem er að mestu gert úr þekjuvefsfrumum.

Frumurnar eru dauðar yst á hornlaginu en dýpra eru þær lifandi og skipta sér stöðugt og endurnýja þannig ysta lagið. Húðfruma lifir að meðaltali í 20-50 daga.

Hornlagið gegnir meðal annars því hlutverki að verja undirliggjandi hluta húðarinnar gegn örverum og vatni.

Undir hornlaginu er þykk leðurhúð sem er aðallega gerð úr bandvef. Í leðurhúðinni eru einnig taugaendar, æðar, hársekkir, svita- og fitukirtlar og smágerðir vöðvar.

Húðin er stærsta líffæri líkamans. Í fullorðnum manni vegur hún um 5 kílógrömm og yfirborð hennar er um 2 fermetrar.

Hægt er að lesa nánar meira um húðina í svörum við eftirfarandi spurningum:


Þetta svar er í flokknum "bekkirnir spyrja" þar sem starfsfólk vefsins svarar spurningum frá grunnskólabekk í kennslustund, samkvæmt samningi. Lögð er áhersla á skjót svör, stutt og aðgengileg. Oft er byggt á öðrum svörum sem kunna að nýtast almennum lesendum betur....