Spurning

Hvaða pláneta er næst Mars?

Spyrjandi

Ólöf, f. 1994

Svar

Það er jörðin sem er næsta pláneta við Mars. Fjarlægðin milli þeirra er mjög breytileg, allt frá tæplega 56 milljón km til 400 milljón km. Þessi munur stafar af því að reikistjörnur sólkerfisins ganga í sporbaug umhverfis sólina. Röðin á plánetum sólkerfisins frá sólu er þessi: Merkúríus, Venus, jörðin, Mars, Júpíter, Satúrnus, Úranus, Neptúnus.


Jörðin er næst Mars!

Rússar gerðu fyrstu tilraunir til að komast til Mars á árunum 1960-1962 en þær mistókust allar. Fyrsta ferðin sem heppnaðist var farin árið 1964, þá flaug bandaríska geimfarið Mariner 4 fram hjá hnettinum og náði 20 ljósmyndum af litlum hluta yfirborðsins. Síðan þá hafa fjölmargir könnunarleiðangrar haldið í átt að Mars. Sumir hafa heppnast, á meðan aðrir hafa misheppnast.

Heimildir og mynd:
Þetta svar er eftir nemendur í Háskóla unga fólksins, námskeiðum á vegum HÍ fyrir 12-16 ára ungmenni í júnímánuði 2012.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur14.6.2012

Tilvísun

Helgi James Þórarinsson og Kristín Hekla Örvarsdóttir. „Hvaða pláneta er næst Mars?“. Vísindavefurinn 14.6.2012. http://visindavefur.is/?id=49829. (Skoðað 20.5.2013).

Höfundar

Helgi James Þórarinssonnemandi í Háskóla unga fólksinsKristín Hekla Örvarsdóttirnemandi í Háskóla unga fólksins



Leit


Vísindadagatalið

Hans Christian Ørsted
(1777-1851)
( Fyrri Næsti )

Danskur eðlis- og efnafræðingur, uppgötvaði að rafstraumar skapa segulsvið kringum sig og hafa t.d. áhrif á segulnálar. Hafði einnig áhrif á heimspeki og vísindamiðlun á sinni tíð.

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans

Háskóli unga fólksins 2013