Spurning
Hvenær var Sókrates uppi og hverjir voru foreldrar hans?
Spyrjandi
Melkorka Magnúsdóttir, fædd 1988
Svar
Sókrates fæddist í Aþenu um 470 fyrir Krist og dó þar 399 fyrir Krist, við inntöku eiturs til að framfylgja dómi Aþenubúa yfir honum.Faðir Sókratesar hét Sófróniskus og talið er að hann hafi verið myndhöggvari. Móðir Sókratesar hét Faínaretes og starfaði sem ljósmóðir.
Sjá svar Hrannars Baldurssonar við annarri spurningu um Sókrates.
Um þessa spurningu
Dagsetning
Útgáfudagur22.6.2000
Flokkun:
Efnisorð
Tilvísun
HMH. „Hvenær var Sókrates uppi og hverjir voru foreldrar hans?“. Vísindavefurinn 22.6.2000. http://visindavefur.is/?id=561. (Skoðað 26.5.2013).
Höfundur
HMHheimspekingur og fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins





