Spurning

Hvað þýðir orðið epískur sem heyrist nú oft og tíðum og hvaðan er það upprunnið?

Spyrjandi

Páll Sigurður Björnsson

Svar

Orðið epískur merkir ‛sögulegur, með sögulegu efni’ og er notað um ljóð og annan skáldskap. Það er þekkt í málinu frá því á fyrri hluta 19. aldar og er fengið að láni úr dönsku episk í sömu merkingu. Orðið er ættað úr grísku epikós ‛sögulegur’ sem dregið er af nafnorðinu épos ‛hetjukvæði, söguljóð’.

Um þessa spurningu

Dagsetning

Útgáfudagur12.10.2011

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið epískur sem heyrist nú oft og tíðum og hvaðan er það upprunnið?“. Vísindavefurinn 12.10.2011. http://visindavefur.is/?id=59851. (Skoðað 23.5.2013).

Höfundur

Guðrún Kvaranprófessor

Frekara lesefni á Vísindavefnum:



Leit


Vísindadagatalið

Stefán Stefánsson
(1863-1921)
( Fyrri Næsti )

Grasafræðingur, skólamaður og alþingismaður, rannsakaði jurtir um allt land í mörg sumur og gaf út fyrstu Flóru Íslands. Lét sér annt um skólamál og vísindi.
Lesa meira...

Aðalstyrktaraðili

Happdrætti Háskólans