Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvert er hlutverk þindarinnar?

Þuríður Þorbjarnardóttir

Í heild hljóðaði spurningin svona:
Hvert er hlutverk þindarinnar og hverjar geta verið afleiðingar skemmdar/sprungu í þindinni?
Þindin er þunnur vöðvi neðan á brjóstkassanum og skilur brjóstholið, með hjarta og lungum, frá kviðarholi með meltingarfærum. Hún er helsti öndunarvöðvi líkamans og sem slík stuðlar hún að öndunarhreyfingum sem leiða til inn- og útöndunar. Rifjavöðvar milli rifbeina eru einnig öndunarvöðvar.

Þindin (appelsínugul á myndinni) er þunnur vöðvi neðan á brjóstkassanum og skilur brjóstholið frá kviðarholi

Þindin fær hreyfiboð frá þindartaugum sem tengjast öndunarstöð í mænukylfu og brú heilans. Þegar boð berast frá öndunarstöð um þindartaugar dregst þindin saman. Hún togar þá í ytri fleiðrur eða brjósthimnur lungna sem eru fastar við hana. Við það eykst rúmmál lungna, loftþrýstingur innan þeirra fellur og verður lægri en loftþrýstingur andrúmsloftsins. Þá streymir loft ofan í lungun. Þetta er innöndun. Útöndun verður þegar slaknar á þindinni. Þá hvelfist hún upp í brjóstholið og þrýstir á lungun, rúmmál þeirra minnkar, loftþrýstingur í þeim eykst og loft streymir út.

Öndunarhreyfingar eru taktfastar og nokkuð reglulegar. Í hvíld andar fólk að um það bil 12-15 sinnum á mínútu, en það er þó einstaklingsbundið og háð aldri og líkamsástandi. Róleg öndun í hvíld verður fyrst og fremst vegna starfsemi þindar. Rifjavöðvarnir, sem eru einnig tengdir við ytri fleiðru lungnanna, geta þó framkallað svipaða atburðarás.

Auk þess að vera helsti öndunarvöðvi líkamans gegnir þindin einnig hlutverki við að losa líkamann við ælu, hægðir og þvag. Enn fremur kemur hún við sögu á öðru stigi fæðingar þegar konan fær svokallaðar rembingshríðir. Þá aðstoðar þindin, ásamt kviðvöðvum, legið við að þrýsta barninu út um fæðingarveginn (leggöngin).

Hún er helsti öndunarvöðvi líkamans og stuðlar að öndunarhreyfingum sem leiða til inn- og útöndunar.

Rifa eða gat á þindinni getur haft kviðslit í för með sér. Þá þrýstast magi eða jafnvel smáþarmar í gegnum rifuna upp í brjóstholið. Þetta er sérstök tegund kviðslits þar sem einkennin koma ekki út á húðinni, til dæmis í nára, eins og önnur kviðslit. Mætti ef til vill kalla þessa gerð af kviðsliti þindarkviðslit eða þindarslit (e. hiatal hernia).

Þótt engin sjáanleg merki fylgi þindarsliti er það ekki einkennalaust. Þindarslit verður oft þar sem vélindað gengur í gegnum þindina og ofan í magann. Ef slaknar á þessu gati á þindinni er hætta á að hluti af maganum þrýstist upp í brjóstholið og magainnihald fari í öfuga átt, úr maga og upp í vélinda. Þetta kallast bakflæði. Þar sem vélindað er ekki varið fyrir súru innihaldi magans veldur þetta sársaukafullri sviðatilfinningu eða brjóstsviða.

Heimildir og myndir:

Höfundur

Útgáfudagur

17.11.2006

Spyrjandi

Bjarki Sigurðsson

Tilvísun

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvert er hlutverk þindarinnar?“ Vísindavefurinn, 17. nóvember 2006. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6387.

Þuríður Þorbjarnardóttir. (2006, 17. nóvember). Hvert er hlutverk þindarinnar? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6387

Þuríður Þorbjarnardóttir. „Hvert er hlutverk þindarinnar?“ Vísindavefurinn. 17. nóv. 2006. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6387>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...