Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hver var Pálína sem hin svokölluðu Pálínuboð eru kennd við?

Guðrún Kvaran

Pálínuboð er sams konar boð og það sem á ensku er kallað potluck party. Kemur þá hver og einn með eitthvað og leggur til með sér á matar- eða kaffiborðið. Allsendis er óvíst að einhver sérstök Pálína eigi heiðurinn að nafninu. Líklegra er að hún Pálína með prikið hafi orðið kveikjan að nafninu. Flestir kannast við þessa vísu:
Pálína með prikið

potar sér gegnum rykið,

rogast hún með rjóma,

rembist hún með smjör.

Þetta verður veisla, vítamín og fjör.

Pálína með prikið, Pálína með prikið.
Ekki er vitað til að þarna sé sérstök Pálína að baki.

Allsendis er óvíst að einhver sérstök Pálína eigi heiðurinn að nafninu.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

14.3.2013

Spyrjandi

Björg Bjarnadóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hver var Pálína sem hin svokölluðu Pálínuboð eru kennd við?“ Vísindavefurinn, 14. mars 2013. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=64326.

Guðrún Kvaran. (2013, 14. mars). Hver var Pálína sem hin svokölluðu Pálínuboð eru kennd við? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=64326

Guðrún Kvaran. „Hver var Pálína sem hin svokölluðu Pálínuboð eru kennd við?“ Vísindavefurinn. 14. mar. 2013. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=64326>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...