Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvort er réttara að tala um að ljósið hafi slokknað eða að það hafi slökknað?

Guðrún Kvaran

Sögnin slokkna (slokna) þekkist allt frá fornu máli í merkingunni 'hætta að loga'. Sagt er að slokknað hafi á kertinu, ljósið hafi slokknað, eldurinn hafi slokknað í arninum. Sögnin að slökkva merkir 'kæfa, eyða loga' og talað er um að skökkva eldinn, slökkva ljósið, slökkva á kertinu.

Líklegt er að síðarnefnda sögnin hafi haft áhrif á hina fyrri þannig að til verður hliðarmyndin slökkna í sömu merkingu og slokkna. Bæði slokkna og slökkna eru viðurkenndar sem rétt mál.

Hægt er að lesa meira um loga, ljós og kerti á Vísindavefnum, meðal annars í svörum við spurningunum:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

27.8.2007

Spyrjandi

Guðný Ólafsdóttir

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvort er réttara að tala um að ljósið hafi slokknað eða að það hafi slökknað?“ Vísindavefurinn, 27. ágúst 2007. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=6775.

Guðrún Kvaran. (2007, 27. ágúst). Hvort er réttara að tala um að ljósið hafi slokknað eða að það hafi slökknað? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=6775

Guðrún Kvaran. „Hvort er réttara að tala um að ljósið hafi slokknað eða að það hafi slökknað?“ Vísindavefurinn. 27. ágú. 2007. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=6775>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar