Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvað er brennisteinstvíildi og hvaða áhrif getur það haft?

Umhverfisstofnun

Brennisteinstvíildi, sem einnig er nefnt brennisteinsdíoxíð, er litlaus lofttegund sem flestir finna lykt af, ef styrkurinn nær um það bil 1000 µg/m3. Allt jarðefnaeldsneyti inniheldur brennistein og er það háð uppruna og tegund eldsneytisins hve mikill hann er.

Meginhluti þess brennisteinstvíildis sem lendir af manna völdum í andrúmsloftinu myndast við bruna á eldsneyti (kol, olía) til dæmis frá bifreiðum. Við bruna eldsneytisins oxast brennisteinninn í brennisteinstvíildi (SO2) sem sleppur út í andrúmsloftið nema fram fari hreinsun á afgasinu. Stór hluti myndast einnig við ýmiss konar iðnað, til dæmis pappírsiðnað og málmiðnað.

Brennisteinstvíildi berst einnig í andrúmsloftið frá náttúrulegum uppsprettum, til dæmis við niðurbrot lífræns efnis og við eldgos. Styrkur í hreinu andrúmslofti er áætlaður um það bil 1 µg/m3. Reiknað er með að 10% af brennisteinstvíildi í andrúmsloftinu komi frá náttúrulegum ferlum. Þegar brennisteinstvíildið losnar út í andrúmsloftið, hvarfast það við svonefnda OH-radikala (radical) í andrúmsloftinu og myndar SO3 (brennisteinssýru, e. sulfurous acid), sem síðan hvarfast við vatn og myndar brennisteinssýruagnir (e. sulforic acid particles).

Brennisteinstvíildi berst í andrúmsloftið bæði af mannavöldum og frá náttúrulegum uppsprettum.

Brennisteinstvíildi er hvarfgjarnt efni og tekur ýmsum breytingum í umhverfinu. Hluti hvarfast eða loðir við yfirborð fastra efna. Þannig er í menguðu umhverfi venjulega mun lægri styrkur innandyra en utan (aukin tæring). Gróður getur tekið upp brennisteinstvíildi og hefur vissa hæfileika til að umbreyta því í súlfat (SO4). Ef mikið brennisteinstvíildi er til staðar, þannig að þessum hæfileika sé ofboðið, koma fram gróðurskemmdir.

Brennisteinstvíildi er einnig ein helsta ástæðan fyrir súru regni. Hluti oxast í súrefni loftsins í tríoxíð, sem leysist upp í raka loftsins og myndar brennisteinssýru. Hluti þeirrar sýru eyðist í andrúmsloftinu til dæmis með hvarfi við ammoníak en líklega fellur stærstur hluti til jarðar í formi súrs regns og hefur það víðtækar afleiðingar. Súrt regn hefur meðal annars í för með sér skemmdir á gróðri og eyðingu skóga auk þess sem það stuðlar að skemmdum á byggingum og öðrum mannvirkjum.

Oxun brennisteinstvíildis yfir í tríoxíð gerist með "fótókemískum" leiðum og fyrir áhrifa ýmissa málmhvata, svo sem járns, mangans og vanadíums. Hraði efnahvarfsins og eftirfylgjandi hreinsunar úr andrúmsloftinu er háður aðstæðum eins og hitastigi, loftraka og rykmagni. Talið er að helmingunartími brennisteinstvíildis í andrúmslofti sé að meðaltali um 3 sólarhringar.

Brennisteinstvíildi hefur neikvæð áhrif á heilsu manna og hár styrkur brennisteinstvíildis getur hindrað öndun, ert augu, nef og háls, valdið köfnun, hósta, öndunarsjúkdómum og óþægindum í brjósti. Einnig hefur það áhrif á öndun plantna, getur valdið drepi og vanlíðan dýra og valdið málmtæringu.

Á Íslandi losna þúsundir tonna af brennisteinsvetni (H2S) á ári þegar jarðhiti er unninn úr jörðinni og hluti brennisteinsvetnisins oxast smám saman í brennisteinsildi. Íslenskur iðnaður, álver og fiskimjölsverksmiðjur losa einnig þónokkuð af brennisteinstvíildi.

Einnig losar bifreiðaumferð nokkuð af efninu, en það er íslenski skipaflotinn sem veldur jafn mikilli losun brennisteinstvíildis og allur iðnaður í landinu. Mestur hluti þeirrar losunar fer fram langt frá landi, en í kringum stórar hafnir getur öll þessi umferð samt sem áður haft mikil áhrif á gæði loftsins á svæðinu.

Mynd:

Þetta svar er af heimasíðu Umhverfisstofnunar og birt með góðfúslegu leyfi.

Höfundur

Útgáfudagur

16.1.2015

Spyrjandi

Kristófer Ingimundarson

Tilvísun

Umhverfisstofnun. „Hvað er brennisteinstvíildi og hvaða áhrif getur það haft?“ Vísindavefurinn, 16. janúar 2015. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=68957.

Umhverfisstofnun. (2015, 16. janúar). Hvað er brennisteinstvíildi og hvaða áhrif getur það haft? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=68957

Umhverfisstofnun. „Hvað er brennisteinstvíildi og hvaða áhrif getur það haft?“ Vísindavefurinn. 16. jan. 2015. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=68957>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...