Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð

Ritstjórn Vísindavefsins

Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast íslenskt stjörnukort ásamt leiðarvísi fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Kortið miðast við himininn yfir Íslandi eins og hann lítur út á kvöldin í desember. Á vefnum er einnig stjörnukort af himninum sem uppfærist í rauntíma.

Margt er að sjá á næturhimninum í desember á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Eitt af því sem vekur athygli er að tunglið verður fullt tvisvar sinnum í mánuðinum, bæði í upphafi hans og á síðasta degi ársins, gamlársdegi. Þetta gerist stöku sinnum en síðasti mánuðurinn sem hafði tvö full tungl var júnímánuður 2007.



Sjöstirnið er auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum.

Hátt á lofti í suðaustri blasir við Sjöstirnið en það er án nokkurs vafa auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum. Það er stórt og bjart og lítur út eins og glitrandi stjörnuský. Með berum augum má sjá um 6-8 stjörnur sem raðast upp í mynstur sem minnir á Karlsvagninn. Í handsjónauka og stjörnusjónauka koma í ljós margfalt fleiri stjörnur í þyrpingunni.

Fyrir neðan Sjöstirnið á himninum er bjart og fallegt stjörnumerki sem nefnist Óríon. Það er auðþekkt á þremur björtum stjörnum í belti Óríons sem oft eru nefndar Fjósakonurnar. Fyrir neðan Fjósakonurnar er sverð Óríons. Í miðju þess er Sverðþokan sem sést með berum augum og er auðvelt að skoða í handsjónauka eða stjörnusjónauka. Sverðþokan er í raun risavaxin ,,stjörnuverksmiðja" og hefur Hubbles-sjónaukinn náð myndum af sólkerfum sem eru að fæðast inni í miðri þokunni.

Útgáfudagur

7.12.2009

Spyrjandi

Ritstjórn

Efnisorð

Tilvísun

Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð.“ Vísindavefurinn, 7. desember 2009. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=70811.

Ritstjórn Vísindavefsins. (2009, 7. desember). Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð. Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=70811

Ritstjórn Vísindavefsins. „Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð.“ Vísindavefurinn. 7. des. 2009. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=70811>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Íslenskt stjörnukort fyrir desembermánuð
Á Stjörnufræðivefnum er hægt að nálgast íslenskt stjörnukort ásamt leiðarvísi fyrir byrjendur í stjörnuskoðun. Kortið miðast við himininn yfir Íslandi eins og hann lítur út á kvöldin í desember. Á vefnum er einnig stjörnukort af himninum sem uppfærist í rauntíma.

Margt er að sjá á næturhimninum í desember á alþjóðlegu ári stjörnufræðinnar. Eitt af því sem vekur athygli er að tunglið verður fullt tvisvar sinnum í mánuðinum, bæði í upphafi hans og á síðasta degi ársins, gamlársdegi. Þetta gerist stöku sinnum en síðasti mánuðurinn sem hafði tvö full tungl var júnímánuður 2007.



Sjöstirnið er auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum.

Hátt á lofti í suðaustri blasir við Sjöstirnið en það er án nokkurs vafa auðþekktasta stjörnuþyrpingin á næturhimninum. Það er stórt og bjart og lítur út eins og glitrandi stjörnuský. Með berum augum má sjá um 6-8 stjörnur sem raðast upp í mynstur sem minnir á Karlsvagninn. Í handsjónauka og stjörnusjónauka koma í ljós margfalt fleiri stjörnur í þyrpingunni.

Fyrir neðan Sjöstirnið á himninum er bjart og fallegt stjörnumerki sem nefnist Óríon. Það er auðþekkt á þremur björtum stjörnum í belti Óríons sem oft eru nefndar Fjósakonurnar. Fyrir neðan Fjósakonurnar er sverð Óríons. Í miðju þess er Sverðþokan sem sést með berum augum og er auðvelt að skoða í handsjónauka eða stjörnusjónauka. Sverðþokan er í raun risavaxin ,,stjörnuverksmiðja" og hefur Hubbles-sjónaukinn náð myndum af sólkerfum sem eru að fæðast inni í miðri þokunni....