Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum?

Svavar Sigmundsson

Nafnið Þýskaland er dregið af þjóð, en þýðverskur merkir hið sama og þýskur, samanber fornháþýsku diutisc sem merkti ‚alþýðlegur‘, en á gotnesku var orðmyndin þiudisks og merkti ‚heiðinn‘. Skylt þessum myndum er deutsch í Deutschland og tysk í Tyskland. Orðið Dutch ‚hollenskur‘ var notað í ensku á 15. og 16. öld í merkingunni ‚þýskur‘ og er skylt því orði.

Rómverjar nefndu þjóðflokka sem bjuggu í Norður-Þýskalandi og jafnvel Skandinavíu um Krists burð Germani. Germany í ensku er því komið frá Rómverjum en uppruni nafnsins Germania er með öllu óviss. Það er ekki talið komið úr latínu og er frekar talið dregið af germönskum þjóðflokki eða einhverri nágrannaþjóð Germana, en um upprunamerkingu þess hafa ýmsar tilgátur verið uppi. Ein er að nafnið sé keltneskt, úr fornírsku gair ‚nágranni‘ og maon ‚fólk‘ eða úr germönsku máli, gari ‚spjót‘ og man ‚maður‘.

Á frönsku heitir landið Allemagne, úr Alemanni, sem var nafn á þjóðflokki sem eitt sinn bjó á svæðinu og merkir ‚allir menn‘.

Á finnsku er nafn Þýskalands Saksa ‚land Saxa‘.

Frekari fróðleikur á Vísindavefnum:

Heimildir og mynd:

  • Ásgeir Bl. Magnússon. Íslensk orðsifjabók. 1989.
  • Adrian Room. Dictionary of Proper Names. 1994.
  • Mynd: Deutschland á Wikipedia. Texti settur inn af ritstjórn Vísindavefsins.

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum? (T.d. Deutshland, Germany og Tyskland o.s.frv).

Höfundur

Svavar Sigmundsson

fyrrv. forstöðumaður Örnefnastofnunar

Útgáfudagur

4.9.2009

Spyrjandi

Ríkey Guðmundsdóttir

Tilvísun

Svavar Sigmundsson. „Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum?“ Vísindavefurinn, 4. september 2009. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=29267.

Svavar Sigmundsson. (2009, 4. september). Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=29267

Svavar Sigmundsson. „Af hverju heitir Þýskaland svo ólíkum nöfnum á frekar líkum tungumálum?“ Vísindavefurinn. 4. sep. 2009. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=29267>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...