Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?

HaH og EDS

Borgarfjarðarbrúin, brúin yfir Borgarfjörð við Borgarnes, er lengsta brú landsins, 520 m löng. Hafist var handa við gerð hennar árið 1975 en hún var vígð í september 1981. Smíði brúarinnar þótti mikið afrek á sínum tíma og eitt stærsta verk sem Vegagerðin hafði þá ráðist í. Með tilkomu brúarinnar styttist hringvegurinn um 11 km og leiðin á milli Borgarness og Reykjavíkur um 28 km.

Brúin yfir Borgarfjöð er lengsta og stærsta brú landsins.

Borgarfjarðarbrúin var hins vegar ekki lengsta brú landsins þegar hún var opnuð heldur hafði brúin yfir Skeiðará þann titil. Bygging þeirrar brúar hófst árið 1972 og hún var tilbúin að fullu í júlí 1974. Þegar framkvæmdum lauk var hringvegurinn um Ísland loks endanlega tilbúinn. Þegar brúin var vígð var hún 904 metra löng. Við Skeiðarárhlaupið 1996 skemmdist brúin hins vegar og styttist í kjölfarið um 24 metra þegar hún var löguð og var 880 metrar eftir það.

Borgarfjarðarbrúin hafði þó vinninginn allt frá upphafi þegar litið var til flatarmáls þar hún var tvíbreið en Skeiðarárbrúin einbreið með útskotum þar sem bílar gátu mæst en. Flatarmál Skeiðarárbrúar var 3.870 m2 en Borgarfjarðarbrúarinnar 4.659 m2. Því má segja að hún hafi verið stærsta brúin allt frá því hún var tekin í notkun

Skeiðarárbrú var lengsta brú landsins í áratugi en var aflögð árið 2017.

Hægt er að skoða lista yfir lengstu og stærstu brýr landsins á vef Vegagerðarinnar.

Heimildir:

Myndir:


Svar við þessari spurningu var upphaflega birt árið 2010 en endurskoðað í júlí 2022).

Höfundar

fyrrverandi starfsmaður Vísindavefsins

Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir

landfræðingur og starfsmaður Vísindavefsins

Útgáfudagur

11.7.2022

Spyrjandi

Leikskólinn Klambrar

Tilvísun

HaH og EDS. „Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?“ Vísindavefurinn, 11. júlí 2022. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=56612.

HaH og EDS. (2022, 11. júlí). Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=56612

HaH og EDS. „Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?“ Vísindavefurinn. 11. júl. 2022. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=56612>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hver er lengsta og stærsta íslenska brúin?
Borgarfjarðarbrúin, brúin yfir Borgarfjörð við Borgarnes, er lengsta brú landsins, 520 m löng. Hafist var handa við gerð hennar árið 1975 en hún var vígð í september 1981. Smíði brúarinnar þótti mikið afrek á sínum tíma og eitt stærsta verk sem Vegagerðin hafði þá ráðist í. Með tilkomu brúarinnar styttist hringvegurinn um 11 km og leiðin á milli Borgarness og Reykjavíkur um 28 km.

Brúin yfir Borgarfjöð er lengsta og stærsta brú landsins.

Borgarfjarðarbrúin var hins vegar ekki lengsta brú landsins þegar hún var opnuð heldur hafði brúin yfir Skeiðará þann titil. Bygging þeirrar brúar hófst árið 1972 og hún var tilbúin að fullu í júlí 1974. Þegar framkvæmdum lauk var hringvegurinn um Ísland loks endanlega tilbúinn. Þegar brúin var vígð var hún 904 metra löng. Við Skeiðarárhlaupið 1996 skemmdist brúin hins vegar og styttist í kjölfarið um 24 metra þegar hún var löguð og var 880 metrar eftir það.

Borgarfjarðarbrúin hafði þó vinninginn allt frá upphafi þegar litið var til flatarmáls þar hún var tvíbreið en Skeiðarárbrúin einbreið með útskotum þar sem bílar gátu mæst en. Flatarmál Skeiðarárbrúar var 3.870 m2 en Borgarfjarðarbrúarinnar 4.659 m2. Því má segja að hún hafi verið stærsta brúin allt frá því hún var tekin í notkun

Skeiðarárbrú var lengsta brú landsins í áratugi en var aflögð árið 2017.

Hægt er að skoða lista yfir lengstu og stærstu brýr landsins á vef Vegagerðarinnar.

Heimildir:

Myndir:


Svar við þessari spurningu var upphaflega birt árið 2010 en endurskoðað í júlí 2022)....