Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík

Hvað er lúsablesi?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:
Hver er uppruni orðsins lúsablesi? Hvað merkja orðin lúsa og blesi þarna?

Orðið lúsablesi virðist samkvæmt heimildum koma upp um miðja 20. öld sem skammaryrði um ómerkilegan mann en einnig um lúsugan mann. Það er samsett úr orðunum lús ‘lítið sníkjudýr sem heldur sig á mönnum, skepnum og jurtum’ og blesi, oftar blesa, ‘ljós blettur framan á höfði dýra, einkum hesta’.

Blesi var til í fornu máli sem viðurnefni og hefur nafnberinn líklega haft einhvern blett í andliti sem minnti á blesu. Blesi er algengt heiti á blesóttum hesti, það er með blesu á enni.

Blesi er algengt heiti á blesóttum hesti, það er með blesu á enni.

Hvernig á samsetningunni lúsablesi stendur hefur mér ekki tekist að hafa upp á. Orðið er mjög niðrandi, og ávallt hefur verið neikvætt að vera lúsugur.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.10.2018

Spyrjandi

Fjalarr Páll Mánason

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er lúsablesi?“ Vísindavefurinn, 10. október 2018. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=76025.

Guðrún Kvaran. (2018, 10. október). Hvað er lúsablesi? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=76025

Guðrún Kvaran. „Hvað er lúsablesi?“ Vísindavefurinn. 10. okt. 2018. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=76025>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...