Sólin Sólin Rís 05:40 • sest 21:16 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 15:13 • Sest 05:59 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 03:57 • Síðdegis: 16:31 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:23 • Síðdegis: 22:34 í Reykjavík

Hvað þýðir orðið skergála?

Guðrún Kvaran

Skergála og skerjagála er notað um kvensel (á skeri) og óþekka ær sem sækir í flæðisker en einnig um stelpugálu en óþægum og fyrirferðarmiklum stelpum er oft líkt við fyrirferðarmiklar ær.

Orðin eru fremur ný í málinu. Eina heimildin í Ritmálssafni Orðabókar Háskólans er frá miðri 20. öld. Fyrri liðurinn er sker ‘klöpp eða klettur rétt yfir eða undir sjávarmáli’ en síðari liðurinn gála ‘óstýrilát (ofsakát) stúlka, flenna, stygg skepna ...’.

Skergála og skerjagála er meðal annars notað um kvensel á skeri.

Einnig er til orðmyndin skerjála sem samkvæmt Íslenskri orðsifjabók er samandregin mynd úr hinum tveimur.

Heimild:
  • Ásgeir Böndal Magnússon. 1989. Íslensk orðsifjabók. Orðabók Háskólans, Reykjavík.

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

24.4.2019

Spyrjandi

Þórarinn Magnússon

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið skergála?“ Vísindavefurinn, 24. apríl 2019. Sótt 19. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=77134.

Guðrún Kvaran. (2019, 24. apríl). Hvað þýðir orðið skergála? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=77134

Guðrún Kvaran. „Hvað þýðir orðið skergála?“ Vísindavefurinn. 24. apr. 2019. Vefsíða. 19. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=77134>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...