Sólin Sólin Rís 05:19 • sest 21:35 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 25:18 • Sest 04:56 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 07:07 • Síðdegis: 19:24 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 01:08 • Síðdegis: 13:14 í Reykjavík
Árnastofnun - mynd í *Árnarstofnun

Hvenær fer gamanið að kárna?

Guðrún Kvaran

Öll spurningin hljóðaði svona:
Hvenær fer gamanið að kárna? Hvað merkir kárna og á þetta örugglega að vera kárna en ekki grána?

Sögnin að kárna merkir ‘versna, úfna, fara úr lagi, rifna, verða viðsjárverður, ískyggilegur’ samkvæmt Íslenskri orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1989:448). Ásgeir telur hana vísast leidda af lýsingarorðinu kárr ‘hrokkinhærður’ í fornu máli og upphafleg merking sagnarinnar sé ‘verða úfinn, hrukkast, ýfast, ólagast’. Af sama stofni er orðið kári í merkingunni ‘vindur, vindkviða’ og karmannsnafnið Kári ‘hinn hrokkinhærði’.

Sögnin að kárna er vísast leidd af lýsingarorðinu kárr ‘hrokkinhærður’ í fornu máli.

Bæði samböndin að kárna gamanið og grána gamanið merkja hið sama. Grána merkir ‘verða grár(ri), versna.’

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

3.12.2019

Spyrjandi

Örn Ó.

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvenær fer gamanið að kárna?“ Vísindavefurinn, 3. desember 2019. Sótt 25. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=77969.

Guðrún Kvaran. (2019, 3. desember). Hvenær fer gamanið að kárna? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=77969

Guðrún Kvaran. „Hvenær fer gamanið að kárna?“ Vísindavefurinn. 3. des. 2019. Vefsíða. 25. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=77969>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...