Sólin Sólin Rís 05:51 • sest 21:06 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 09:47 • Sest 06:52 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 00:02 • Síðdegis: 12:48 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 06:36 • Síðdegis: 18:53 í Reykjavík
COVID-19 borði í flokk

Hvers konar lyf á að hafa læknað Bandaríkjaforseta af COVID-19?

Magnús Jóhannsson

Bandaríkjaforseti mun hafa verið meðhöndlaður með tilraunalyfinu REGN-COV2 en hann fékk líka annars konar meðferð. Samkvæmt bestu heimildum var hann líka meðhöndlaður með remdesivír sem farið er að nota við COVID-19 með nokkuð góðum árangri. Hann mun einnig hafa fengið barkstera sem er einnig farið að gefa illa veikum sjúklingum með COVID-19. Það er því ekki ljóst hvaða lyf kunna að hafa hjálpað Trump að ná bata. Kannski batnaði honum þrátt fyrir meðferðina sem hann fékk en ekki vegna hennar.

Trump þakkar batann REGN-COV2 en þá má benda á að þetta lyf er alls ekki fullrannsakað og eftir er að sýna fram á að lyfið geri tilætlað gagn og sé öruggt. Trump átti um skeið hlutabréf í lyfjafyrirtækinu Regeneron sem er að þróa lyfið REGN-COV2. Hlutabréf í Regeneron hafa hækkað mjög mikið á undanförnum mánuðum. Það er svolítið kaldhæðnislegt að við þróun þessa lyfs voru notaðar stofnfrumur úr mannafóstri en Trump og ríkisstjórn hans hafa barist gegn notkun frumna úr mannafóstrum við rannsóknir.

Ekki er ljóst hvaða lyf kunna að hafa hjálpað Trump að ná bata. Kannski batnaði honum þrátt fyrir meðferðina sem hann fékk en ekki vegna hennar.

En hvers konar lyf er REGN-COV2? Þetta lyf er ekki bóluefni heldur blanda tveggja mótefna, annað er upprunnið úr mönnum sem hafa veikst af COVID-19 og batnað en hitt úr músum sem voru sýktar með veirunni sem veldur COVID-19. Mótefnin eru síðan framleidd í erfðabreyttum eggjastokkafrumum úr kínverskum hömstrum en frumurnar eru ræktaðar í miklu magni. Þessum mótefnum er ætlað að bindast prótínum á yfirborði veirunnar og hindra að hún geti tengst við og sýkt frumur líkamans. Um er að ræða svo kölluð einstofna mótefni sem bindast við sitt hvorn staðinn á veirunni. Lyfið þarf að gefa sem stungulyf, það verkar einungis í stuttan tíma en veitir ekki langvarandi vörn gegn sjúkdómnum eins og bóluefni.

Lyfið REGN-COV2 er blanda tveggja mótefna. Mótefnunum er ætlað að bindast prótínum á yfirborði veirunnar og hindra að hún geti tengst við og sýkt frumur líkamans. Hér sést einföld skýringarmynd af veiru.

Nú standa yfir lokarannsóknir á virkni og öryggi þessa lyfs en þangað til að þeim lýkur ríkir óvissa um framtíð REGN-COV2. Í þeim rannsóknum sem er lokið hefur lyfið verið gefið innan við 300 sjúklingum en sú tala verður komin í nokkra tugi þúsunda áður en þeim rannsóknum sem nú eru í gangi lýkur. Framleiðandinn telur sig geta verið tilbúinn með lyfjaskammta sem duga til að meðhöndla allt að 300.000 sjúklinga fyrir árslok þannig að lyfið verður ekki í boði nema handa tiltölulega fáum útvöldum fyrr en á næsta ári. Þetta lyf er í flokki líftæknilyfja sem öll eru dýr en enginn verðmiði er enn kominn á lyfið enda óvissa um kostnaðinn við lokarannsóknir.

Fleiri lyfjaframleiðendur eru að þróa ný lyf sem byggja á sömu eða svipuðum forsendum og REGN-COV2.

Frekara lesefni:

Myndir:

Langri spurningu Arnar er hér svarað að hluta.

Höfundur

Magnús Jóhannsson

prófessor emeritus í líflyfjafræði við HÍ

Útgáfudagur

15.10.2020

Spyrjandi

Örn, ritstjórn

Tilvísun

Magnús Jóhannsson. „Hvers konar lyf á að hafa læknað Bandaríkjaforseta af COVID-19?“ Vísindavefurinn, 15. október 2020. Sótt 16. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=80307.

Magnús Jóhannsson. (2020, 15. október). Hvers konar lyf á að hafa læknað Bandaríkjaforseta af COVID-19? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=80307

Magnús Jóhannsson. „Hvers konar lyf á að hafa læknað Bandaríkjaforseta af COVID-19?“ Vísindavefurinn. 15. okt. 2020. Vefsíða. 16. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=80307>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

=

Hvers konar lyf á að hafa læknað Bandaríkjaforseta af COVID-19?
Bandaríkjaforseti mun hafa verið meðhöndlaður með tilraunalyfinu REGN-COV2 en hann fékk líka annars konar meðferð. Samkvæmt bestu heimildum var hann líka meðhöndlaður með remdesivír sem farið er að nota við COVID-19 með nokkuð góðum árangri. Hann mun einnig hafa fengið barkstera sem er einnig farið að gefa illa veikum sjúklingum með COVID-19. Það er því ekki ljóst hvaða lyf kunna að hafa hjálpað Trump að ná bata. Kannski batnaði honum þrátt fyrir meðferðina sem hann fékk en ekki vegna hennar.

Trump þakkar batann REGN-COV2 en þá má benda á að þetta lyf er alls ekki fullrannsakað og eftir er að sýna fram á að lyfið geri tilætlað gagn og sé öruggt. Trump átti um skeið hlutabréf í lyfjafyrirtækinu Regeneron sem er að þróa lyfið REGN-COV2. Hlutabréf í Regeneron hafa hækkað mjög mikið á undanförnum mánuðum. Það er svolítið kaldhæðnislegt að við þróun þessa lyfs voru notaðar stofnfrumur úr mannafóstri en Trump og ríkisstjórn hans hafa barist gegn notkun frumna úr mannafóstrum við rannsóknir.

Ekki er ljóst hvaða lyf kunna að hafa hjálpað Trump að ná bata. Kannski batnaði honum þrátt fyrir meðferðina sem hann fékk en ekki vegna hennar.

En hvers konar lyf er REGN-COV2? Þetta lyf er ekki bóluefni heldur blanda tveggja mótefna, annað er upprunnið úr mönnum sem hafa veikst af COVID-19 og batnað en hitt úr músum sem voru sýktar með veirunni sem veldur COVID-19. Mótefnin eru síðan framleidd í erfðabreyttum eggjastokkafrumum úr kínverskum hömstrum en frumurnar eru ræktaðar í miklu magni. Þessum mótefnum er ætlað að bindast prótínum á yfirborði veirunnar og hindra að hún geti tengst við og sýkt frumur líkamans. Um er að ræða svo kölluð einstofna mótefni sem bindast við sitt hvorn staðinn á veirunni. Lyfið þarf að gefa sem stungulyf, það verkar einungis í stuttan tíma en veitir ekki langvarandi vörn gegn sjúkdómnum eins og bóluefni.

Lyfið REGN-COV2 er blanda tveggja mótefna. Mótefnunum er ætlað að bindast prótínum á yfirborði veirunnar og hindra að hún geti tengst við og sýkt frumur líkamans. Hér sést einföld skýringarmynd af veiru.

Nú standa yfir lokarannsóknir á virkni og öryggi þessa lyfs en þangað til að þeim lýkur ríkir óvissa um framtíð REGN-COV2. Í þeim rannsóknum sem er lokið hefur lyfið verið gefið innan við 300 sjúklingum en sú tala verður komin í nokkra tugi þúsunda áður en þeim rannsóknum sem nú eru í gangi lýkur. Framleiðandinn telur sig geta verið tilbúinn með lyfjaskammta sem duga til að meðhöndla allt að 300.000 sjúklinga fyrir árslok þannig að lyfið verður ekki í boði nema handa tiltölulega fáum útvöldum fyrr en á næsta ári. Þetta lyf er í flokki líftæknilyfja sem öll eru dýr en enginn verðmiði er enn kominn á lyfið enda óvissa um kostnaðinn við lokarannsóknir.

Fleiri lyfjaframleiðendur eru að þróa ný lyf sem byggja á sömu eða svipuðum forsendum og REGN-COV2.

Frekara lesefni:

Myndir:

Langri spurningu Arnar er hér svarað að hluta....