Sólin Sólin Rís 05:26 • sest 21:28 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 21:24 • Sest 05:22 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 06:10 • Síðdegis: 18:30 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 00:11 • Síðdegis: 12:20 í Reykjavík

Hvað er átt við þegar menn hátta sig eða fara í háttinn?

Guðrún Kvaran

Í heild hljóðaði spurningin svona:
Ég og Nína barnabarnið mitt erum að velta fyrir okkur sõgninni að hátta. Hátta sig eða fara í háttinn. Hvaðan kemur þetta og hvernig verður orðið hátta til?

Karlkynsnafnorðið háttur merkir ‘venja, útlit, aðferð ...’ og af því er leidd sögnin hátta ‘haga til’, til dæmis því er svo háttað nú í pestinni að allir eiga að nota grímu. Af karlkynsorðinu er myndað orðasambandið fara í háttinn, það er hátta, taka á sig náðir.

Orðin háttur í merkingunni ‘háttatími, svefntími’ og hátta ‘fara í rúmið, ganga til svefns’ eru náskyld og að baki liggur líklega merking karlkynsorðsins ‘venja’, það er það er venja manna að fara í rúmið og ganga til svefns.

Af sama toga og karlkynsorðið og sögnin er kvenkynsorð í fleirtölu háttur í merkingunni ‘háttatími, svefntími’ og sögnin hátta ‘fara í rúmið, ganga til svefns’. Öll eru þessi orð náskyld og að baki liggur líklega merking karlkynsorðsins ‘venja’, það er það er venja manna að fara í rúmið og ganga til svefns.

Heimild og mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

10.6.2021

Spyrjandi

Hreinn Valgerðar Hreinsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er átt við þegar menn hátta sig eða fara í háttinn?“ Vísindavefurinn, 10. júní 2021. Sótt 23. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=81623.

Guðrún Kvaran. (2021, 10. júní). Hvað er átt við þegar menn hátta sig eða fara í háttinn? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=81623

Guðrún Kvaran. „Hvað er átt við þegar menn hátta sig eða fara í háttinn?“ Vísindavefurinn. 10. jún. 2021. Vefsíða. 23. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=81623>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

...