Sólin Sólin Rís 05:36 • sest 21:19 í Reykjavík
Tunglið Tunglið Rís 16:44 • Sest 05:50 í Reykjavík
Flóð Flóð Árdegis: 04:37 • Síðdegis: 17:05 í Reykjavík
Fjaran Fjara Árdegis: 10:57 • Síðdegis: 23:09 í Reykjavík

Hvað er að vera á skjön?

Guðrún Kvaran

Upprunalega hljóðaði spurningin svona:
Að vera á skjön við eitthvað, t.d. stefnu eða stjórnvöld. Ég veit hvað það merkir en hvaðan kemur orðið "skjön"?

Orðið skjön merkir ‘skakki, skái’. Orðasambandið á skjön merkir ‘á ská, út á hlið’. Það er þekkt í málinu frá 18. öld og er líklega tökuorð úr dönsku på skjøns í sömu merkingu.

Orðasambandið á skjön merkir ‘á ská, út á hlið’. Húsið á myndinni er á skjön við önnur hús.

Í Íslenskri orðsifjabók (1989:851) segir Ásgeir Blöndal Magnússon orðið líklega komið í dönsku úr lágþýsku schüns ‘á ská’, eiginlega eignarfall af lágþýsku schün (sbr. holl. Schuin ‘skakkur, skástæður’.)

Heimild:

Mynd:

Höfundur

Guðrún Kvaran

prófessor

Útgáfudagur

25.6.2021

Spyrjandi

Guðlaugur Þórarinsson

Tilvísun

Guðrún Kvaran. „Hvað er að vera á skjön?“ Vísindavefurinn, 25. júní 2021. Sótt 20. apríl 2024. http://visindavefur.is/svar.php?id=81712.

Guðrún Kvaran. (2021, 25. júní). Hvað er að vera á skjön? Vísindavefurinn. Sótt af http://visindavefur.is/svar.php?id=81712

Guðrún Kvaran. „Hvað er að vera á skjön?“ Vísindavefurinn. 25. jún. 2021. Vefsíða. 20. apr. 2024. <http://visindavefur.is/svar.php?id=81712>.

Chicago | APA | MLA

Spyrja

Sendu inn spurningu LeiðbeiningarTil baka

Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.

Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að svara öllum spurningum.

Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki nægileg deili á sér.

Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.

Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!

=

Senda grein til vinar

Mynd:...